Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 8
Hinir fjóru Mills bræður eru í rauninni
ekki bræður, en þeir eru eng-u að síður
jafn nátengdir. Quartettinn saman stendur
af Donald 32 ára, Harry 35 ára, Herbert
33 ára og Jobn 65 ára. Já, 65 nrn. Hann
er bassinn og er faðir binna þriggja, sem
eru bræður.
„Árið 1936 lék allt í lyndi fyrir okkur,
en þá veiktist Johnny bróðir okkar skyndi-
lega“, sagði Harry við mig er ég talaði
við hann. „Læknarnir sögðu að það mundi
iíða þó nokkur tími unz hann gæti farið
að syngja aftur. Við urðum að afturkalla
fyrir fram gefin loforð um að syngja næstu
tvær vikurnar og æfðum pabba á meðan
til að taka sæti Johnny um stundar sakir.
Það virðist hálf hlægilegt að við skyldum
vera að kenna pabba að syngja á okkar
máta, þar sem hann var okkar fyrsti kenn-
ari. En allt heppnaðist þetta og hann reynd-
ist hinn bezti. Skömmu síðar dó Johnny og
hefur pabbi verið með okkur síðan“.
Þetta var ekki í fyrst sinn, sem faðir
þeirra söng opinberlega. Hann og kona
hans Eathel höfðu bæði verið meðlimir
óperusöngflokks nokkurs. Sönggáfan virt-
ist liggja í ættinni. Elzti bróðirinn var rétt
f jórtán ára og sá yngsti á tíunda árinu, er
þeir komu fyrst fram. „Ég var ellefu ára
þegar við fengum fyrstu föstu vinnuna við
útvarpið", sagði Harry". Þar áður var ég
í skurðgreftri, þar áður vann ég hjá út-
fararstjóra og þar áður bar ég út blöð“.
Þegar Mills börnin voru ung — þau voru
sjö, fjórir drengir og þrjár telpur — hjálp-
uðust þau öll við að afla til heimilisins.
„Sjö unglingar borða mikið“, bætti Harry
við brosandi. Eathel og John Miller kom-
ust að raun um það. Þau urðu að hætta
á söngbrautinni meðan börnin komust á
8