Jazzblaðið - 01.09.1948, Síða 4
Hallur Símonarson:
ÍSLENZKIR H LJÚÐFÆRALEI KARAR
Jóhannes Eggertsson
Jóhannes Eg'gertsson, er með afbrigðum
fjölhæfur hljóðfæraleikari. Leikur hann á
mikinn fjölda hljóðfæra af ólíkustu
gerðum, og líkast til leikur enginn íslend-
ingur á jafn mörg hljóðfæri og hann. Aðal
hljóðfæri hans eru nú sem stendur tromm-
ur, er hann leikur á í hljómsveit Carl
Billich að Hótel Borg, og celló, sem hann
leikur á í symfóníuhljómsveitinni og út-
varpshljómsveitinni. í Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur hann á tenórhorn og baritón.
í útvarpshljómsveitinni lék Jóhannes á
tympani, áður en hann byrjaði þar með
cellóið. Auk þess hefur hann svo leikið á
trombón, kontrabassa og píanó í danshljóm-
sveitum hér áður fyrr.
Enda þótt Jóhannes sé með svona mörg
hljóðfæri í takinu, hefur hann náð mikilli
leikni á sum þeirra, t. d. er hann álitinn
af flestum bezti íslenzki cellóistinn. Jó-
annes er gæddur óvenjulegri tóngáfu, sem
á sinn mikla þátt í því, hve auðvelt hon-
um reynist að læra á hljóðfæri.
*
Jóhannes Eggertsson er fæddur í Reykja-
vík 31. maí 1915. Er hann sonur Egg-
erts heitins Jóhannessonar, hins þjóð-
kunna hljóðfæraleikara, svo segja má,
að tónlistin sé honum í blóð borin. Hann
fékk snemma áhuga fyrir tónlistinni, eins
og gefur að skilja, því hún var í hávegum
höfð á heimili hans.
Árið 1935 byrjaði hann að leika dans-
músik opinberlega, og þá fyrst í hljómsveit,
er Aage Lorange var með í Iðnó. Lék hann
þar á kontrabassa. Veturinn eftir lék hann
einnig í Iðnó í hljómsveit, sem kallaði sig
„Blue Boys“, en í henni léku auk Jóhann-
esar, er lék þar á trommur, Henry Rasmus-
sen, píanó, Adolf Theódórsson, altó-saxafón,
Skafti Sigþórsson, tenór-saxafón og Guð-
laugur Magnússon á trompet. Næstu árin
lék Jóhannes á ýmsum stöðum, t. d. hjá
Carl Billich að Hótel Island og Aage Lor-
ange í Oddfellow. 1 Oddfellow lék hann á
trombón, en á trombón hafði hann lært hjá
Þjóðverjanum Helmut Siddicher, sem lék
á trompet í hljómsveit Carl Billich. Árið
1938 byrjaði Jóhannes að leika að Hótel
Borg, og hefur hann leikið þar að mestu
síðan. Byrjaði hann með kontrabassa þar,
en í tangóum og völsum lék hann á píanó,
og segir Jóhannes, að það sé það versta,
sem hann hafi komist í sem hljóðfæraleik-
ari, því hann hafi alltaf gengið skjálfandi
að píanóinu. Lék hann aðeins nokkra mán-
uði á þessi hljóðfæri, en skipti þá yfir á
trommur, sem hann hefur eingöngu leikið
á síðan í dansmúsik. Jóhannes er mjög góð-
ur trommuleikari, og er sagt að enginn
hér á Jandi hafi stöðugra „tempo", en hann.
Jóhannes hlustar talsvert á plötur, sem
hann ráðleggur og öllum að gera, er leggja
stund á hijóðfæraleik, eins mikið af og
mögulegt sé. Fátt sé eins þroskandi fyrir
mann, sem leikur jazzmúsik, og að hlusta á
góðar jazzplötur, ekki einu sinni, heldur oft.
4 JazzlUií