Jazzblaðið - 01.09.1948, Síða 12
Klarinetleikarinn
Bermy Goodman
Sailin’
Benny Go^dman fæddist í borginni
Chicag’o í BandariK, 30. maí 1908.
Tíu ára að aldri by. jaði hann að læra á
klarinett. Fjórtán ara fór hann að leika
með hljómsveitur i sem varð til þess að
Ben Pollach réði hann tii sín árið 1926 og
var hann þar í þrjú ár. Pollack var með
óvenjugóða hljómsveit á þessum árum, og
léku auk Benny hjá honum menn eins og
Glenn Miller, Ray Bauduck, Red Nichols,
Jack og Charlie Teagarden, Eddie Miller
og fleiri, Síðan lék Goodman í hinum og
þessum útvarpsstöðvum til 1933, en þá
stofnaði hann eigin hljómsveit og léku þeir
í eitt ár við miklar vinsældir á útvarps-
prógrami nokkru er hét „Let’s dance“, og
er almennt sagt að með þessari hljómsveit
Benny hafi swing orðið til. Árið 1936 var
hljómsveitin orðin frægasta hljómsveit
Bandaríkjanna, og einhver bezta hljómsveit
sem uppi hefur verið. Með Benny voru
t. d. Gene Krupa, Jess Stacy, Harry James,
Allan Reuss og fleiri úrvals jazzleikarar.
Innan hljómsveitar sinnar hefur Good-
man oft haft litla hljómsveit t. d. tríó,
quartet, quintet og sextet, og hafa hljóm-
sveitir þessar mikið leikið inn á plötur.
Flestir eru sammála um, að Benny Good-
man sé færasti jazzklarinetleikari, sem
uppi er. Einnig er hann í röð fremstu
klassisku klarinetleikara og hefur komið
fram sem einleikari með allmörgum
symfóníu hljómsveitum.
Leikið með hljómsveit Teddy Wilson á
Bru.nswick-plötu-A-81103.
Meðfylgjandi sóló Benny af laginu Sailin
lék hann með hljómsveit Teddy Wilson og
er þetta ein af hans allra beztu sólóum.
12 #azzlUit