Jazzblaðið - 01.10.1948, Page 8

Jazzblaðið - 01.10.1948, Page 8
ÚR ÝM5UM ÁTTUM Eftirleiðis verður þessi opna sérstaklega tileinkuð áhugamálum lesenda. Þar verða birt bréf þeirra og þeim svarað o. s. frv. Einnig verða birtir sönglagatextar, en lát- ið okkur vita hvaða texta þið viljið helzt fá birta og verður þá farið eftir því. Mun- ið nú að nota þetta tækifæri og sendið blaðinu línu hið fyrsta. Bréfin verða birt og þeim svarað í þeirri röð, sem þau berast. Að þessu sinni verðum við að óskum fjölmargra, sem æskt hafa upplýsinga um viðhald og hreinsun hljómplatna og birtum greinarkorn um slíkt. Plötuhirðing. Þegar þú hefur komið þér upp plötusafni ríður á, að hirða vel um það. Ef þú átt yfir fjögur hundruð plötur er nauðsynlegt að gera lista yfir þær og skrifa plöturnar niður í stafrófsröð. Sumir raða þeim niður eftir hljómsveitum og aðrir eftir merkjum, ]i. e. a. s. Decca plötur væru á einum staðn- um og Victor plötur á öðrum, o. s. frv. En ejgir ])ú færri en fjögur hundruð plötur er nóg að hafa þær í albúmum og hefur þá hver hljómsveit sitt albúm. Gott væri að líma miða með nafni hljómsveitarinnar á kjöl albúmsins. Flestir plötusafnarar hafa hverja einstaka plötu í umslagi úr þykkum stífum pappír og fást þessi ums- lög stundum í plötuverzlunum. Heppilegast væri að hafa plöturnar, sem hafðar eru í umslögunum í hillum. Þá er hægt að ganga að þeim vísum hvenær sem er. Til að plöt- urnar vindist ekki þurfa að vera hólf í hillunum með 10—15 cm. millibili. Hvað því viðvíkur að leika plöturnar, er ekki hvað þýðingarminnst hvernig nálar á að nota. Mjög auðvelt er að koma af staö hörkuriflildi í hópi plötusafnara með því að fitja upp á þessu málefni. En hvað sem öllum nálum viðvíkur, þá er mjög áríð- andi að „pick-upinn“ eða hljóðdósin og hljóðdósararmurinn vegi sem allra minnst, og cíðan má nota „rnjúkar" stólnálar eða safír eða kaktusnálar. Sumir nota demants- nálar í léttum pick-up og’ hefur það gefist vel. Stálnálarnar ganga mest úr sér, en gefa nokkuð jafnan hljóm. Kaktusnálarnar fara bezt með plöturnar, en eru óþægilegar í meðförum og þarf ætíð að halda þeim vel yddum. Margar hinna sjaldgæfari, eldri platna eru mikið úr sér gengnar og slitnar. Eigir þú einhverjar, sem þannig líta út, þá skaltu bera á þær með góðum húsgagnaáburði og nota til þess mjúkan klút. Auk þess sem áburðurinn hreinsar mikið af riki og ó- hreinindum úr skorunum, hjálpar hann nál- inni til að fara dýpra þegar platan er leikin. Þegar plötur springa eða brotna, er hægt að líma þær saman með sterku Hmi, t. d. lími, scm notað er við smíði flugvélaÞ'kana. Þurfir þú að senda eða ferðast með plötur, er nauðsynlegt að ganga vel frá þeim. Þær skulu lagðar flatar, og hafa skal þykkt pappaspjald á milli hverrar plotu. Spjöld þessi er hægur vandi að fá í plötuverzlun- um og eins pappakassa til að láta plöturnar í. Síðan skaltu loka kassanum með teigju- bandi, en ekki snæri, því plötunum er hætt við að brotna þegar það er hert utan um kassann. Eftirfarandi bréf hafa nýlega borist blaðinu: Til Jazzblaðsins. Vinsamlegant </efið mér einkverjar upp- lýsingar um ævi og starf Fletcker Hend- erson. Með fyrirfram þökk, Jón Þorst,

x

Jazzblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.