Jazzblaðið - 01.10.1948, Side 10

Jazzblaðið - 01.10.1948, Side 10
Leouard Feather: Upprennandi Jazz-stjörnur ★ LESLIE SCOTT. Fjöldi frægra jazzleikara hafa með að- stoð hljómsveita sinna gert marga beztu söngvarana fræga. Peggy Lee og Helen Forrest eiga Benny Goodman mikið að þakka frama sinn; Duke Ellington kynnti Herb Jeffries; Billy Eck- stine náði frægð með hjálp Earl Hines og hijómsveit- arinnar. í hljómsveit enn annars frægs jazzleikara, Louis Armstrong, er söngvari, sem virðist ætla að verða þeim fremstu skeinuhættur. Hann heitir Leslie Scott og hefur sungið með Armstrong hljómsveitinni síðan hann losnaði úr hernum um 1945. Leslie er það sem kallað er „romantic bariton". Hann syngur af meiri sannfæringarkrafti og meiri tilfinningu, en ekki sömu uppgerðar viðkvæmninni og margir aðrir söngvarar. Hann fæddist í New York 1921 og söng með kirkjukór er hann var tíu ára gamall, síðan söng hann með skólakórum. Arin fyrir stríð voru beint ekki glæsileg. Hann dvaldist aðallega í Boston og kom hann þar í fyrsta sinn fram í útvarpið, sem meðlim- ur söngflokks nokkurs er nefndist „She Loh Kahlí'-kórinn. Síðan komst hann að við hljómsveit Tasker Cross þar í borg, sem fjórði maður í söng-quartet. Hann segist vart hafa átt í sig eða á, er hann var í New York um 1940 og allt þangað til hann var kvaddur í herinn 1943. í herþjónustunni dvaldi hann í Maryland og kom þar mikið fram á hei’mannaskemmtunum. Hann fékk sitt stóra tækifæri fyrir nokkr- um mánuðum er Victor plötufyrirtækið gerði samning við hann. Hann var svo heppinn að fá hinn fyrrverandi Charlie Barnet útsetjara, Billy Moore jr. til að út- sctja og stjórna hljómsveitinni, sem annað- ist undirleik fyrstu plötunn- ar og hétu lögin á henni „Stars fell on Alabama" og „Baby, get lost“. 1 hljóm- sveitinni voru Joe Newman (trompet), Georgo Nicholas (sax) og Jimmy Jones (pí- anó) allir úr hljómsveit J. C. Heard, Toots Mondello, Hymie Schertzer og Serge Chaloff léku einnig saxafón og auk Jones voru í rhythm- anum þeir Billy Bauer á guitai', Denzil Best á tromm- ur og Chubby Jackson á bassa. Louis Armstrong, sem er afar hreykinn af þessari nýju stjörnu, var jafnvel ennþá hrifnari er það kom í Ijós að vinsældir fyrstu plötunnar fóru fram úr björtustu spádómum. Aðeins viku eftir að þessi fyrsta plata vai' gerð, var hann ráðinn til að gera aðra, einnig með aðstoð Billy Moore. * Fylgist vel með Leslie Scott — hann virðist ætla að verða skæðasti keppinautur Eckstine. Spike Jones hljómsveitin lék fyrir nokkru í veizlu hjá forsetja Bandaríkjanna. Dóttir forsetans, Margrét, söng nokkur lög með hljómsveitinni. En hún hefur undanfarin ár verið aci læra óperusöng. 10 #a»LUiÍ

x

Jazzblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.