Jazzblaðið - 01.10.1948, Síða 12
Svavar Gests:
FRÉTTIR 0% FLEIRA
ERLENT.
Mary Lou Williams réðst í Goodman sext-
etinn þegar Teddy Wilson hætti. Til mála
getur komið að klarinetleikari sextetsins,
Stan Hasselgard og tenór-saxleikarinn
Wardell Gray stofni eigin hljómsveitir.
Bassaleikarar. Johnny Miller er nýlega
hættur í King Cole tríóinu og tók óþekktur
bassaleikari að nafni Joe Comfort sæti hans.
— Chubby Jackson er nú aftur byrjaður
að leika með hljómsveit Woody Herman.
— Vissirðu, að Ed Safranski, bassaleikar-
inn hjá Stan Kenton, er fæddur í Póllandi,
og að hann lék mörg ár á fiðiu í Pittsburg
symfóníuhljómsveitinni. Gale Frega er hætt-
ur að leika í Joe Mooney quartettinum.
Kai Winding trombónleikarinn, sem áður
lék með Kenton og söngvarinn Buddy Stew-
art, er með mjög góða sex manna hljóm-
sveit. Með þeim er mjög efnilegur tenór-
saxafónleikari að nafni Gene Ammons, en
hann er sonur hins þekkta boogie píanó-
leikara Alberts Ammons.
Gene Williams, sem nýlega er hættur að
syngja með hljómsveit Claude Thornhill,
hefur stofnað eigin hljómsveit. Fran Warr-
en söngkona Thornhill hljómsvéitarinnar
er nýlega farinn að syngja sjálfstætt.
Johnny Bothwell altó-sax leikari hefur
nýlega tekið við stjórn unglingahljómsveit-
ar þeirrar er bar sigur úr býtum fyrir
rúmu ári síðan í kosningum tímaritsins
Look, um titilinn bezta unglingahljómsveit
Bandaríkjanna. Meðalaldur meðlimanna er
19 ára.
Kenny Hagood, sem stundum er nefndur
l’ancho, er nú farinn að syngja sjálfstætt.
I-Iann söng áður með hljómsveit Dizzy Gill-
espie og er hann talinn í röð fremstu söngv-
ara Bandaríkjanna.
Plötur. (Framhald úr síðasta blaði).
Nokkrar nýútkomnar fyrsta flokks jazz-
plötur. Charlie Ventura: East of Suez.
I'eggy Lee: Don’t smoke in bed. Chubby
Jackson: L’Ane. ./. ./. Johnson: Mad Be-
Bop. Charlie og Leo Parker: Leaping Leo.
Dizzy Gillespie: Ool-ya-koo. Woody Her-
man: Keen and peachy. Julia Lee: Lotus
blossom. New sounds in modern music: Al-
búm með fjórum plötum leiknum af þekkt-
ustu Be-Bop leikurum U.S.A. (Meira í
næsta blaði).
Rcd Norvo vibrafónleikari gifti sig í ann-
að sinn fyrir 2—3 árum eftir að hann hafði
skilið við fyrri konuna (auðvitað), en hún
er söngkonan Mildred Bailey. Nýlega eign-
aðist sú seinni dóttur og strax og Lionel
Hampton frétti það ákvað hann að senda
þeirri nýfæddu lítinn vibrafón í vöggugjöf..
12 ýazzltaáié