Jazzblaðið - 01.10.1948, Síða 13

Jazzblaðið - 01.10.1948, Síða 13
Kvikmyndir. Og fari það svo að bíóin fái að flytja inn myndir þá eru þetta amerísku músikmyndirnar, sem þið komið til með að sjá. Melody time, Night song, I surrender dear, Words and music, April showers, The big city, Carmen, The miracle of the bells, Manhattan angle, Road to Rio, The emperor Waltz, Casbah, You were ment for me, Make believe ballroom, og nokkrar fleiri. Jimmy Dorsey hefur nú endurskipulagt hljómsveit sína og hefur hann ráðið til s'n þekkta be-bop leikara eins og Conrad Gozzo trompet, Arnold Ross píanó, Joe Mondragon bassa og fleiri og svo einnig þekkta Dixie- land leikara svo sem Brad Gowans tromb- ón, Charlie Teagarden trompet, Ray Bauduc trommur og Nappy Lamare guitar o. fl. og blessast þetta allt saman prýðilega og bindur Jimmy miklar vohir við hljómsveit- Trausti Thorberg skrif- ar frá Kaupmannahöfn. Hinum árlegu kosn- ingum sænska músik- biaðsins Estrad, um beztu jazzleikai'a Sví- þjóðar, er nýlcga lokið. Hljómsveit ársins verður þannig skipuð: John Björling 1. altó-sax, Carl H. Norin 1. tenór, Gösta Theselius 2. tenór, Arne Domnerus 2. altó, Casper Hjukström 5. sax (baritón), Nisse Skoogh 1. trompet, Gösta Törner 2., Arnold Johnsson 3. og Anders Svárd 4., George Vernon 1. trombón, Bob Henders 2., Sven Hedberg- 3. og Miff Görl- ing 4. Henry Wallin trommur, Thore Swan- erud píanó, Sten Carlberg guitar, Simon Brehm bassi, Gösta Theselius útsetjari, Alice Babs Sjöblom söngkona. Allan Johnsson vibrafónleikari varð rctt á undan klarinetleikaranum Putte Wickman í flokkn- um „ýms hljóðfæri". Alice Babs er væntanieg hingað í október og með henni quartet Charles Norman og munu þau leika og syngja víða í Danmörku. — Heyrst hefur að Louis Armstrong muni koma til Skandinavíu og fleiri Evrópu- landa bráðlega. — Danski trommuleikarinn Uffe Baadh og sænski trompetleikafinn Rolf Ericson leika nú báðir með hljóm- sveitum í Bandaríkjunum. — Hinn vinsæli sænslci hljómsveitarstjóri Thore Ehrling átti nýlega t'u ára hljómsveitarstjóra af- mæli. Píanóleikari hans Stig Holm er sá eini, sem eftir er úr fyrstu hljómsveit hans. — Fremsta danshljómsveit Noregs um þess- ar mundir er án efa tíu manna hljómsveit Kalle Westby. — Kær kveðja. Trausti. INNLENT. Nokkrar breytingar hafa orðið á hljóm- sveitum bæjarins, eins og reyndar oftast á haustin. Gunnar Egilsson klarinetleikari, sem lék hjá Birni R. Einarssyni, er far- inn til Englands til framhaldsnáms. I' hans stað kom Gunnar Ormslev með tenór-sax. Ennfremur kom Guðmundur Vilbergsson í hljómsveitina í stað Haraldar með trompet. — Hljómsveitin að Hótel Borg, sem hefur verið nokkuð losaraleg í sumar, er nú að komast í fastar skorður og er skipun hennar nú: Carl Billich píanó, Jóhannes Eggerts- son trommur, Einar B. Waage bassi, Ólafur Gaukur guitar, Sveinn Ólafsson tenór-sax, Kristján Kristjánsson altó-sax og klarinet og Höskuldur Þórhallsson trompet. Þessi hljómsveit leikur fyrir dansi þrjá daga í viku. Fjórða daginn leikur hljómsveit Björns R. og hina þrjá er leikin klassisk tónlist. — F.f.H. dansleikir hafa nokkrir verið undanfarið og ætíð verið húsfylli. — I samkomusal Mjólkurstöðvarinnar leika þeir Eyþór Þorláksson á guitar, Hallur Símonarson á bassa, Guðm. Steingrímsson á trommur, Magnús Pétursson á píanó og Bragi Einarsson á saxafón og klarinet. — Nokkrar hljómsveitanna hafa leikið inn á plötur hjá Ríkisútvarpinu og verða þær leiknar í danslögunum í vetur. A fyrsta vetrardag (23. okt.) voru leiknar í útvarp- ið plötur með hljómsveit I.O.G.T.-hússins. Hana skipa: Jóhann G. Halldói'sson stjórn- andinn er með harmóniku, Ólafur Markús- son fiðlu, Guðni Guðnason harmóniku, Guð- jón Pálsson píanó og Svavar Gests trommur og xylafón. Hallur Símonarsson lék með á plötunum á bassa. S. G. ItdLU 13

x

Jazzblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.