Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 14

Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 14
Svencl Asiiiusseii eftir Svavar Gests Fyrir fáeinum árum datt ég ofan á plötu í Hljóðfærahúsinu. Á henni stóð skrifað öðru megin: SWEET SUE — Jam session, og síðan þessi nöfn: Oscar Aleman sóló guitar, Bibi Miranda tromm- ur, Svend Asmussen fiðla, Henry Hage. man tenórsaxafónn og klarinet, Helge Jacobsen rhythma guitar og Alfred Ras- mussen bassi. Hinumegin á plötunni var svo lagið LIMEHOUSE BLUES leikið af sömu mönnum. Það var ekki um að villast, þetta hlutu að vera danskir hljóðfæraleikarar, það gáfu nöfnin Rasmussen, Asmussen og Jacobsen til kynna. Aleman gat veriö villandi, en Miranda hlaut að vera af suð- rænum uppruna, því kvikmyndaleikkon- an Carmen á Miranda fyrir seinna nafn, og hún er eins suðræn og þær framast geta orðið. Kannske er hún frænka trommuleikarans Bibi, sem lék á þessari plötu. Eg fór strax að afla mér upplýsinga um þessa menn og komst ég fljótt að því, að Svend Asmussen er einn.íremsti jazz- leikari Dana, og hvað hinum viðvék, þá er Oscar Aleman eins og Bibi- Miranda frá Argentiu, og hefur hann leikið í Ev- rópu síðan 1929 og leikið með helztu jazzleikurum Evrópu og eins amerískum jazzleikurum, sem dvalið hafa þar. Oscar er afar lítið þekktur utan Evrópu, en hann er áreiðanlega í hópi fremstu guit- arleikara heimsins. Bibi Miranda er eins og ég sagði áður, einnig frá Suður-Amer- íku. Hann hefur leikið víða í Evrópu í mörg ár. Helge Jacobsen er álitinn bezti rhythma-guitarleikari Danmerkur og tal- inn ómissandi, þegar jazzhljómleikar eru haldnir. Hageman er allgóður klarinet. leikari og Rasmussen svipaður á bass- ann. Þá er aðeins einn eftir úr þessum hópi, og er það Svend Asmussen, og hér kemur saga hans. Svend fæddist í Kaupmannahöfn árið 1916. Hann var á unga aldri látinn íara að læra á fiðlu. Hugur hans hneigðist mikið að listum, og var hann sem ung- lingur allgóður listmálari og myndhöggv- ari. Hann var látinn ganga menntaveg- 14 (jazzUaSii,í

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.