Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 25

Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 25
bjóðandí í sóló. í dæmi C áttu að leika allar nóturnar í hljómnum, þetta gefur meiri möguleika, en er samt nokkuð takmarkað. En ef þú reynir að sam- ræma dæmi B og C, færðu út dæmi D. Nú er það farið að hljóma eins og jazz, ekki satt? Ágætt. Nú skulum við fara enn lengra og gefa þessu dálítinn nú- tíma stíl. Til þess bætum við sjöttu nótu í skalann við okkar einfalda B dúr hljóm og komum með ennþá fjöl- breyttari, og sannkallaða nútíma fra- seringu, eins og þú sérð í dæmi E. í þessum, reyndar einföldu, dæmum hefi ég reynt að sýna þér, hvernig byggja á upp impróvíseringu. Reynsla min við kennslu undanfarið ár hefur sannað, að lærdómur sem þessi, ber árangur. Með þessum takmörkuðu æf- ingum hefi ég sýnt þér, hvernig fara á af stað. Það hvílir svo á þér, hver árangurinn verður. Byrjaðu nú strax á því að læra hljómana og hlustaðu á eins mikinn jazz og þú mögulega getur. A Jazz-hljómleikarnir í Gamla Bíói þann 15. nóvember hófust með því að Jón M. Árnason kynnti fyrstu hljómsveitina, sem leika átti, og var það K. K. sextettinn, með Jóni Sig- urðssyni bassaleikara í hljómsveit Jan Morávek sem viðbótarmanni. Hljómsveitin lék fjögur lög og gerði þeim dágóð skil. Jón Sigurðsson trom- petleikari stóð sig bezt. Þar sem þetta voru að mestu leiti Be-bop lög, fannst mér Einar trommuleikari ekki vera eins virkur og skyldi, en hann er nýliði í jazzinum og það því skiljanlegt. Næst kom tæplega tíu mínútna hlé án þess að nokkuð skeði á sviðinu. — Þá fékk maður að heyra í hljómsveit Karls Jónatanssonar, en Karl stóð einnig fyrir hljómleikunum með Adolfi Theó- dórssyni úr hljómsveit Tage Muller, sem viðbótarmanni, og lék hann á altó-saxafón.— Hljómsveitin lék fyrst „What is this thing called love“, prýðilega útsett af Árna Isleifs- syni. Síðan lék hljóm- sveitin undir þremur lögum, sem Sigrún Jónsdóttir söng. Þar átti Þorkell trompet- leikari ágætar sólóar í milli-chorusum. Sigrún var góð að vanda, en klaufalegt var að þurfa að endurtaka síðasta Framh. á bls. 31. JazzífaiS 25

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.