Jazzblaðið - 01.03.1950, Síða 4
H a l l u r S í m o n ar s o n :
ÍSLENZKIR H LJDÐFÆRALEI KARAR
)
Guömundur Finnbjörnsson
Eftir margra mánaða illviðri, rok og rign-
ingar, þrumur og eldingar, birtir nú skyndi-
lega til í lofti. — Sólin skín í heiði og það
er eins og allt vakni af drunga vetrarins.
— Eftir margra mánaða leti og ómennsku
vöknum við líka af vetrardrunganum og
veðrið drífur okkur til dáða. Við göngum
vestur í bæ á Birkimel 6. Fórnarlambið í
þetta skipti er Guðmundur Finnbjörnsson.
Bað er hann, sem í þetta sinn verður yfir-
heyrður um það, sem á dagana hefir drifið.
Og svo áfram með smjörið:
★
Guðmundur er fæddur á ísafirði 1. nóv-
ember 1923, sonur Finnbjörns Finnbjörns-
sonar málarameistara þar. Það er dálítið
skennntilegt að geta þess, að faðir Bubba
— við köllum Guðmund alltaf Bubba og
verður því haldið hér — já, faðir hans og
föðurbróðir léku á dansskemmtunum fyrir
þrjátíu árum síðan, svo að Bubba væri illa
í ætt skotið, ef hann léki ekki á eitthvert
hljóðfæri, — enda gerir hann það, leikur
liæði á altó-saxafón og fiðlu. Lék auk þess
á tenór-saxafón og trompet með Jóhannesi
heitnum Þorsteinssyni á Akureyri sumarið
1945. í Lúðrasveitinni á ísafirði lék Bubbi
1. trompet.
★
Tólf ára gamall byrjaði hann að læra á
fiðlu hjá Gunnari Hallgrímssyni, er kenndi
á hijóðfæri á ísafirði. Fyrst í stað tók
hann námið ekki alvarlcga og heilir mán-
uðir liðu án þess að hann snerti hljóðfærið.
En áhugi hans vaknaði fyrst verulega, þeg-
ar hann stundaði nám í Gagnfræðaskólan-
um á ísafirði og hann byrjaði að leika þar
á skóladansæfingum. Er liann útskrifaðist
úr Gagnfræðaskólanum, eftir þriggja vetra
nám, fór hann til Reykjavíkur og scttist í
Verzlunarskólann og hóf meðfram nám í
Tónlistarskólanum í fiðluleik hjá Birni
Ólafssyni. Á þessum árum lck hann tals-
vert opinberlega og þá aðallega á skóla-
dansæfingum. Nítján ára gamall útskrif-
aðist Bubbi úr Verzlunarskólanum og fór
hann þá vestur aftur og byrjaði að leika
þar í hljómsveit, sem danskur maður, að
nafni Herlufsen stjórnaði.
En það er ekki nóg með, að Bubbi sé fær
maður í hljóðfæraleik. Hann hefir lagt
gjörva hönd á margt um æfina og auk þess
sem liann er útskrifaður úr Verzlunarskól-
anum, er hann bæði lærður málarameistari
og meiraprófs bifreiðarstjóri, svo að varla
þarf hann að kvíða að hann verði atvinnu-
laus. En það verður ekki tekið fyrir hér í
þessum fáu orðum, aðeins minnst á það,
sem sönnun þess hvað í manninum býr.
I fyrravctur lék Bubbi í Tjarnarcafc með
Baldri Kristjánssyni og fór með honum til
Akurcyrar í sumar sem leið. „Akureyri er
skemmtilegur bær, sérstaklega á sumrin",
segir Bubbi og við trúum því af hjartans
sannfæringu. „En Reykjavík er skemmti-
legri“. Það samþykkjum við auðvitað á
augabragði, ekki sízt þar sem við vitum að
Reykjavík hefur nú gefið Bubba stóran
„sjens“, kannske þann stærsta, sem hann
hefur fcngið á músíkferli sínum. Hann er
4 JlaiJ/aJíJ
I