Jazzblaðið - 01.02.1951, Qupperneq 5
leika á skóladansæfingum í Menntaskóla
Akureyrar og veturinn 1947—48 lék
hann á Hótel Norðurlandi ásamt Jóni
Sigurðssyni, trompet, Einari Jónssyni
trommur og Sverrir Jóhannssyni, sem
lék á altó og klarinet. Sumarið 1948
bættist Helgi Ingimundarson við hljóm-
sveitina með tenór-sax.
Þegar Magnús hóf nám hér í Reykja-
vík, kynntist hann Eyþóri Þorlákssyni
guitarleikara, sem kom Magnúsi að í
Mjólkurstöðinni. Man ég vel, að til stóð
að Rútur Iíannesson, sem nú leikur á
píanó í Mjólkurstöðinni yrði ráðinn, en
þegar Eyþór hafði heyrt Magnús leika,
þá var ekki um annan að ræða.
Um vorið fór Magnús í hljómsveit
Stefáns Þorleifssonar í Tjarnarcafé, þar
sem Eyþór var einnig, en um haustið
hætti hann hjá Stefáni og réðst í hljóm-
sveit Jan Morávek í Góðtemplarahúsinu.
Þar hætti hann síðastliðið vor og lék um
sumarið á Hótel Norðurlandi, en fyrir
bragðið fékk hann hvergi atvinnu, þegar
hann kom í bæinn síðastliðið haust, því
að alls staðar var fullskipað. Nú leikur
hann hins vegar „hér í kvöld og þar
á morgun“, en þó hefur hann aðallega
rækt námið og æfir af kappi.
Hljómsvcit
Jóns Sigurðssonar,
er Magnús lék í
sumarið 1948.
Frá vinstri:
Einar Jónsson,
Helgi Ingimundarson
Sverrir Jóhannsson,
Jón Sigurðsson og
Magnús Pétursson.
Ég var eitt sinn að lesa um erlendan
hljóðfæraleikara, sem ég ekki man nú
hvað hét, og var þar sagt að kalla mætti
hann „Musicians musician“ og finnst
mér þetta einmitt eiga vel við um
Magnús Pétursson. Hann er eini pianó-
leikarinn hér á lan'di, er leikið getur
klassik og jazz með jafngóður árangri,
hann er ágætur útsetjari, hefur samið
fyrirtaks lög, og mjög gott dæmi um,
að hann eigi fyllilega skilið titilinn
„Musician“ er það, að þegar að starfs-
bræður hans eru að ræða um hvaða bíó-
mynd sé nú skárst, þá lætur hann allt
slíkt sem vind um eyru þjóta. Hann tek-
ur sjaldnast þátt í samræðunum, lieldur
situr yfir krossgátu, sem aðrir hafa gef-
ist upp við og raular lagstúf.
Er sem sé óháður öllu og öllum, nema
sjálfúm sér og tónlistinni.
S. G.
í næsta hcfti verður grein eftir frétta-
ritara blaðsins í Svíþjóð, BENNY
AASLUND um hljómsveit Cari-Henrik
Norin, sem er ein frcmsta hljómsveit
Svíþjóðar. — I»á verður og birt grein
eftir Þjóðverjann Dr. Dietrich Schulz-
Köhn um ameríska bassaleikarann John
Kirby.
^axxífaU 5