Jazzblaðið - 01.02.1951, Qupperneq 8
að vera kröfuhörð við okkur sjálf (kalda
sturtu á hverjum morgni). Ef við tækj-
um höndum saman og greiddum árs-
gjaldið (gott, áfram), þá myndi það
gefa útgefendunum meira svigrúm. Svo
ættum við auðvitað að vinna ötullega að
útbreiðslu blaðsins (hiklaust). — Því
stærra upplagi sem blaðið er gefið út í,
því ódýrara verður hvert eintak að öðru
jöfnu (jafn einfalt og tvisvar tveir).
— Gæti sá hagnaður er þar ynnist,
komið fram í stækkun blaðsins og yrði
það vel þegið (og nú er verið að draga
blaðið saman). — Ef við gerum öll
skyldur okkar við blaðið, getum við aft-
ur á móti krafist þess af útgefendum,
að þeir geri allt, sem mögulegt er til
þess að blaðið verði sem skemmtilegast
aflestrar (semsagt: fiftyfifty). — Væri
nú t. d. ekki mögulegt að blaðið birti
ennþá meira af danslagatextum, enskum
og íslenzkum, ég veit að allir eru mér
samamála í því (nema við). Háþór.
(Við þökkum gott bréf, og takið nú
kristna trú, öll með tölu, hið fyrsta,
þ. e. a. s. styðjið Jazzblaðið).
DISCS. Ég væri blaðinu mjög þaklc-
látur, ef það gæti gefið mér upplýsing-
ar um hverjir leika á eftirfarandi plöt-
um og hvenær leilcið hefur verið inn á
þær: 1. Riff Staccato, Dulce Ellington
liljómsv. 2. C Jam blues, Barney Bigard
hljómsv. 3. One o’clock jump og Bugle
call rag með Metronome all-stars. h.
Opus One og Boogie blues Gene Krupa
hljómsv. ■ B. G.
SVAR: 1. Ray Nanee, Taft Jordan,
Rex Stewart, Shelton Hemphill og Cat
Anderson trompetar, Joe Nanton, Law-
rence Brown og Claude Jones trombón-
ar, Jimmy Hamilton, Otto IJardwick,
Johnny Hbdges, A1 Sears og Harry
Carney saxófónar, Junior Raglin bassi,
Ellington píanó, Fred Guy guitar og
Sonny Greer trommur. 2. Nance, Ell-
ington, Greei', Carney, Jimmy Bryant
bassi, Juan Tizol trombón og Barney
Bigard klarinet. 3. Harry James, Ziggy
Elman, Cootie Williams trompetar,
Tommy Dorsey og J. C. Higginbotham
trombónar, Benny Goodman klarinet,
Toots Mondello og Benny Carter altóar,
Coleman Hawkins og Tex Beneke ten-
órar, Count Basie píanó, Charlie Christ-
ian guitar, Artie Bernstein Bassi og
Buddy Rich trommur. Sömu menn í
báðum lögunum, sem voru leikin inn 16.
jan. 1941, 4. Tony Russo, Don Fager-
quist, Joe Triscari og Vincent Hughes
trompetar, Leon Cox, Tommy Pederson
og Billy Cully trombónar, Adrian Tei,
Stewart Olson, Charlie Ventura, Johnny
Bothwell og Charlie Kennedy saxófónar,
Teddy Napoleon píanó, Edward Yance
guitar, Irv Lang bassi, Gene Krupa og
Joe Dale trommur (til skiptis) og Anita
O’Day söngkona (í síðara laginu).
IRENE. Ég óska eftir upplýsingum
um, livort nýir guitarar fáist og livað
þeir kosta. 2. Mér hefur verið sagt,
að gamlir guitarar séu betri, þeir verði
hljómmeiri, þegar viðurinn þornar, er
þetta rétt? Væri hægt að fá birtan
textann við lagið „Goodnight, lrene“,
sem Björn R. söng i útvarpið fyrir
nolckru.
Með fyrirfram þakklæti. J. K.
SVAR: Nýir guitarar eru ófáanlegir,
en von er á þeim til landsins innan
skamms. 2. Ekki hefur tekizt að fá
þetta staðfst, en vel má vera að það sé
rétt, t. d. eru fiðlur mjög verðmætar,
þegar þær eru orðnar gamlar, þ. e. a. s.
ef um góða gerð er að ræða. 3. Texta
þennan er því miður ekki hægt að birta
að sinni.
8 ^azzlUií