Jazzblaðið - 01.02.1951, Page 14
leysis. Við þessu varð hann steinhissa.
Síðan sagði hann mér, að sig langaði
mikið til að fara til Evrópu, bæði til
þess að sjá sig um og spila, „því þó
að ég sé fæddur í Rússlandi, þá flutt-
ist ég ungur hingað, og er nú búinn að
gleyma því ferðalagi, og hvernig um-
horfs er á þeim hluta hnattarins".
„Hversu lengi hafið þér fengist við
hljóðfæraleik?" spurði ég.
„Ég byrjaði að spila í menntaskóla,
og nú eru yfir 20 ár síðan“.
„Þér hafið spilað með mörgum hljóm-
sveitum, áður en þér stofnuðuð yðar
eigin hljómsveit?“
„Já, ég hef spilað með Dorsey-bræðr-
um, Ray Noble, Ben Pollack, Bob Crosby
og fleirum".
„Hafið þér alltaf spilað þann stíl, sem
þér spilið núna?“
„Nei, fyrstu árin spiluðum við „Hot
Jazz“, en síðan skiptum við um, og höf-
um síðan spilað þennan svokallaða
„Sweet style“.
„Hvað finnst yður um Bebop?“
„Bebop hefur aldrei orðið mjög al-
gengt hér í Bandaríkjunum, og fólkinu
líkar það ekki, en mér persónulega líkar
það vel eins það er spilað af Gillespie,
Kenton og Woody Herman, en sem sagt:
Það er að hverfa úr sögunni og Dixie-
land jazzinn að taka við, og í þeim
flokki finnst mér að Bob Crosby standi
fremstur. Annars líkar mér öll dans-
músík vel, ef hún er vel spiluð og vel
unnin".
„Hver er yðar bezta plata?“ spurði ég.
„Það mun vera „White Christmas“,
sem tekin var upp 1943“.
Þar sem hléið var senn búið, stóð ég
upp og kvaddi hr. Spivak, og bað hann
mig þá að skila kveðju til jazzunnenda
á íslandi.
tjíúAikþœttir
í erlendum útvarpssiöðvum
JANÚAR—MARZ
BBC 13—16—19—25—31—41—49 mtr.
a=15 mínútur, b=30, c=45.
Sunnud.: 1400 c Jazzlög (25 m). 2015 c Óskalög
Mánud.: 1100 c Leikum lög. 1315 c Nýjar
plötur. 1400 a Hljómsveitir. 1430 a Óska-
Þriðjud.: 930 b Óskalög 19 m). 1430 a Óskalög.
lög. 1545 b Jazzhljómsveit. 1730 b The
Music Goes Round.
2215 b Jazzhljómsveit.
Miðvikud.: 930 b The Music Goes Round (19
m). 1215 c V. Silvester. 1430 a Óskalög.
2045 a Hljómsveit. 0030 b Tip-top lög
(31 m)
Fimmtud.: 1045 a Óskalög. 1430 a Óskalög.
1545 b Tip-Top lög. 200 b Jazzhljómsveit
(31—49 m).
Föstud.: 1430 a Óskalög. 2015 c Leikum lög.
0015 c Leikum lög (31 m).
Laugard.: 930 b Óskalög (19 m). 1215 c Óska-
lög. 1345 b Looking at Jazz (19 m). 1915
c Músik (VA-25 m). 2100 c V. Silvester.
2215 b Looking at Jazz.
Light Programme—247m (1214 kc/s) og 1500m
(200 kc/s).
810—900 (Mán.—Lau.) Létt lög. 1700 (Lau.)
Jazz, b eða c.
2120—2200 (Mán.—Föst.) og 2115—2256 (LaU.)
Hljómsveitir.
„Midnigtli in Munich“ kl. 2205.—2300 (Mán.,
Mið. & Fös.) 312 m (962 kc/s). 100 kW.
BFN í Hamborg 247 m. sama Light Programme.
AFN i Munich 271 m (1106 kc/s) 50 kw. Opið
til kl. 10 á kvöldin.
Danslögin
Vegir ástarinnar
Og
Litla stúlkan mín
sem Haukur Morthens hefur kynnt.
Fást í hljóðfæraverzlunum.
ÚTGEFANDI
14 jaizLUlt