Jazzblaðið - 01.02.1951, Page 22
U. S. A.
★ Dizzy Gille-
spie hefur nýlega
leikið nokkur lög
inn á plötur með
aðstoð strengja-
hljómsveitar í
svipuðum stíl og
Charlie Parker
gerði nú fyrir
nokkru. Johnny
Richards útsetti fyrir hljómsveitina, en
hann var m. a. áður hjá Stan Kenton.
Dizzy mun nú vera byrjaður með litla
hljómsveit á nætui'klúbbnum „Birdland“
og er Milton Jackson m. a. með honum
á vibrafón, en henn hefur leikið í mörg-
um eldri hljómsveitum Gillespie og
einnig hefur hann leikið með honum á
mörgum beztu plötum hans.
★ Benny Good-
man. Nýlega eru
komnar á mark-
aðinn tvær stór-
ar ,Long playing'
plötur, þar sem
getur að heyra
hljómleika, sem
Benny Goodman
hélt 1938. Upp-
takan að hljómleikunum kom nýlega í
leitirnar. Þarna má heyra margar ,Good-
man-stjörnur‘, svo sem Harry James,
Ziggy Elman, Jess Stacy, Gene Krupa
og fleiri. Ennfremur koma nokkrir gest-
ir fram á hljómleikunum, svo sem Lest-
er Young, Johnny Hodges, Buck Clayton,
Bobby Hackett og Harry Carney. —
Hljómleikarnir taka um hálfa aðra klst.
★ Buddy De-
Franco er nýlega
hættur í sextett
Count Basie. —
Hann hefur gert
samning til fimm
ára við „General
Artists Corp“ og
mun hann stofna
stóra hljómsveit.
★ Erroll Garner
er sennilega sá
sólópíanistinn, er
mest hefur að
gera í New York
þessa mánuðina.
— Hann leikur
aðallega á næt-
urklúbbum, en
kemur ennfremur
mikið fram á hljómleikum og í útvarpi
og sjónvarpi. Plötur hans seljast mjög
vel. Þeir John Simmons bassaleikari og
Shadow Wilson trommuleikari leika oft-
ast með honum.
22 ^azzhta&ií