Jazzblaðið - 01.02.1951, Page 23
★ Red Norvo-tríóiiS hefur vakið mikla
eftirtekt í Bandaríkjunum undanfarið.
Norvo, sem er í hópi hinna eldri jazz-
leikara hefur aldrei leikið betur en nú,
eftir því sem jazzgagnrýnendur segja.
— Hann leikur með þeim Ted Farlow
guitarleikara og Charlie Mingus bassa-
leikara, sem báðir voru til þess að gera
óþekktir áður en þeir byrjuðu í tríóinu,
en eru nú orðnir víðfrægir fyrir hinn
afburða leik sinn með tríóinu. Nýlega
hefur tríóið leikið inn á nokkrar plötur,
sem seljast mjög vel.
★ Coleman Hawkins, er
bráðlega verður 45 ára
gamall, er einn hinn allra
vinsælasti jazzleikari í
Bandaríkjunum. — Hann
leikur nú með hinum
þekkta hljómleikaflokki,
,Jazz at the Philharmonic'
og vekur leikur hans eins
og áður hvarvetna mikla
hrifningu.
★ Anita O’Day,
sem fyrir nokkr-
um árum söng
með Gene Krupa
hljómsveitinni og
gerði þá margar
góðar plötur með
henni, kemur nú
eingöngu fram
sem sjálfstæð
söngkona. Söng hún fyrir nokkru í hin-
um fræga næturklúbb í New York, ,Café
Society'.
★ Bud Powell
píanóleikari, sem
sumir álíta vera
fremsta ,Be-bop‘-
píanóleikarann, í
þessa orðs fyllstu
merkingu, hefur
undanfarið leikið
á „Birdland" og
þó hann sé löngu
orðinn þekktur þá vakti leikur hans
mjög mikla athygli.
SVÍÞJÓÐ
★ Fréttdbréf
frá Benny Aas-
lund. Roy Eld-
ridge, bandaríski
trompetleikarinn,
er á hljómleika-
ferðalagi í Sví-
þjóð með sænskri
j azzhi j ómsveit.—
Charlie Parker er
aftur farinn til Bandaríkjanna, en hann
lék hér aðeins í stuttan tíma fyrir jólin.
Hann lék einnig í Danmörku, þar sem
hann heyrði í söngkvartettinum „Gott-
lieb kvintett“, sem Parker sagði, að væri
sá bezti söngkvartett, sem hann hefur
^azzUaíií 23