Jazzblaðið - 01.02.1951, Qupperneq 24
nokkurn tíma heyrt, og er þetta að sjálf-
sögðu nokkur upphefð fyrir hina ungu
Dani. Jack Norén trommuleikari (sjá
myndina hér með) var kosinn jazzleik-
ari ársins, af gagnrýnendum,er sænska
jazzblaðið ,,Estrad“ hafði valið. Norén
er aðeins tuttugu og tveggja ára gamall,
en hefur nýlega vakið mikla athygli sem
framúrskarandi trommuleikari.
Kveðja. — Benny.
INNLENT
son, sem undanfarið
| manna hljómsveit, hef-
■ ur nýle&a fœkkað nið-
sveitin þannig skipuð:
Björn R., trombón, Jón Sigurðsson
trompet, Gunnar Ormslev tenór, Jón
Sigurðsson bassi, Árni Elfar píanó og
Guðmundur R. Einarsson trommur. —
Þessi hljóðfæraskipan hefur aldrei ver-
ið á hljómsveitinni áður, en hún gefur
mikla möguleika, enda má mikils vænta
af hljómsveitinni í framtíðinni. Bjöi-n
er hins vegar með átta manna hljóm-
sveitina á Borginni á þriðjudögum og
eins þegar leikið er í útvarpið. Hinir
tveir mennirnir eru Guðmundur Finn-
björnsson og Vilhjálmur Guðjónsson.
★ Ný danslög hafa nokkur komið út
undanfarið. Nótnaforlagið Tempó hefur
fyrir nokkru gefið út tvö heimsfræg
danslög „Mona Lisa“ og „Goodnight,
Irene“. íslenzkur texti eftir E. Karl
Eiríksson fylgir báðum lögunum, ásamt
hinum enska texta. Önnur tvö þekkt
danslög hafa og verið gefin út nýlega,
„Have I told you lately that I love you“,
sem hlotið hefur íslenzka nafnið „Vegir
ástarinnar" og „Daddy’s little girl“, sem
er gefið út undir nafninu „Litla stúlkan
mín”. — Númi hefur gert textann við
fyrra lagið, en hann gerði sem kunnugt
er hinn þekkta texta Maja, Maja. ísl.
textinn við síðara lagið er eftir Þorst.
Halldórsson.
★ Jazzklúbbur íslands hélt útbreiðslu-
fund í mjólkurstöðinni rétt fyrir jól og
var húsið fullskipað. Fundurinn fór
mjög vel fram og skemmtu menn sér
hið bezta. Klúbburinn heldur fræðslu-
fundi fyrir meðlimi sína hálfsmánaðar-
lega, þar sem jafnan er fluttur margs-
konar fróðleikur um jazz og jazzleikara.
Jazzþátturinn er einnig í, útvarpinu
hálfsmánaðarlega. Er hann mjög vin-
sæll meðal unga fólksins, og reyndar
margra hinna eldri líka, og má segja,
að fyrirkomulag hans sé klúbbnum til
hins mesta sóma.
★ Árni ísleifs píanó-
leikari, er leikið hefur
með hljómsv. Þórarins
Óskarssonar í Lista-
mannaskálanum hefur
gert nokkrar ágætis út-
setningar fyrir hljóm-
sveitina. Þeir Höskuld-
ur Þórhallss. trompetl.
og Guðni Guðnason tóku sæti þeirra
Karls Lilliendahl og Sigurgeirs Björg-
vinssonar nokkru fyrir jól og eru hljóm-
sveitin auðheyrilega í mikilli framför.
★ Tvær lúðrasveitir héldu nýlega upp
á afmæli sitt. Lúðrasveit Hafnarfjarðar
upp á eins árs afmæli, en sveitin var
stofnuð í fyrra af nokkrum áhugasöm-
um hijóðfæraleikurum í Hafnarfirði,
þar á meðal nokkrum kunnum jazzleik-
urum, m. a. Magnúsi Randrup og Rúti
Hannessyni. — Lúðrasveitin Svanur hélt
upp á 20 ára afmæli sitt nokkru fyrir
jól, en með Svönum hafa oft leikið
24