Jazzblaðið - 01.04.1951, Qupperneq 10
DR. DIETRICH SCHULZ—KDHN
hefur skrlfað þessa fróðlegu grein sérstaklega fyrir Jazzblaðið.
Hljómsveit John Kirby
í sögu jazzins hefur sex manna hljóm-
sveit John Kirby skráð einn, og ekki
minnsta kaflann. Það er ekki um bassa-
leikarann John Kirby einan, sem ég
ætla að ræða um heldur um hina litlu
hljómsveit hans. Það er einkennilegt, að
þær negrahljómsveitir er frægð hafa
hlotið hafa sem sagt allar verið stórar:
Duke, Basie, Lunceford, Henderson og
Hampton (að undanskildum hinum litlu
hljómsveitum, er hann hefur sett sam-
an til að leika inn á plötur).
John Kirby fæddist á gamlárskvöld
1908 í Baltimore, þar sem hann síðar
hlaut menntun sína í tónlistarskóla, en
þar lærði hann á píanó og trombón. —
Síðar fór hann að leika á túbu og kontra-
bassa. Árið 1928 tók hann sæti June
Coles í hljómsveit Fletcher Henderson,
og þar með er frægðarferill hans hafinn.
Hann lék með hljómsveit þessari fram
til 1936, að undanskildum nokkrum mán-
uðum á árinu 1934, er hann lék hjá
Chick Webb. 1936 freistaðist hann til
að byrja að leika með „Blue Rhythm
Band“. Þessi skipti hans urðu honum til
heilla. Þarna kynntist hann hljóðfæra-
leikurum, sem hann síðar réði í hljóm-
sveit sína.
Verk hans með hljómsveitum, er leik-
ið hafa inn á plötur er mun meira en
það, er að framan getur. Fyrst er hann
á plötum með „Chocolate Dandies" og
„Hawkins-Allen“, seinna finnum við
hann á plötum með Lionel Hampton, og
meira að segja Benny Goodman kvint-
ettinum. Og skömmu fyrir stríðið má
oft finna hann á plötum með Teddy Wil-
son og eins hinum athyglisverðu plöt-
um Frank Newton. Upptökur hans með
Putney Dandridge, Dick Porter, Willie
„The Lion“ Smith og jafnvel Mezz Mezz-
row eru ekki nærri eins þekktar. Til að
fullkomna upptalninguna getum við
nefnt plötur hans með Mildred Bailey og
Billie Holiday, Taft Jordan, Johnny
Dodds, Buster Bailey og plötur þær, er
enski trompetleikarinn Nat Gonella gerði
í Bandaríkjunum.
Frá 1940 og allt þar til hann lagði
niður hljómsveit sína, finnum við hann
sjaldan leika undir stjórn annara. —
Hinar fáu undantekningar eru nokkur
lög inn á „Capitol" plötur, með þeim
Hawkins og Billy Kyle (1946), og einnig
er hann lék með hljómsveit Charlie
Baniet.
Árin frá 1938 til 1946 er án efa
beztu ár Kirby. — Samsetning hljóm-
sveitar hans var dálítið sérstæð. Hann
notaði hvorki tenór-saxófón né trombón.
Hann notaði eingöngu hærri hljóðfæri:
trompet, klarinet og altósaxófón, auk
þriggja rhythmahljóðfæra — hann
sleppti guitarnum.
Um leið og John Kirby var stjórnandi
og skipuleggjari hljómsveitarinnar var
Charlie Shavers sál hennar. Hann skrif-
10