Jazzblaðið - 01.06.1951, Qupperneq 6
Ormslev var þó ekki lengi hjá Birni R.
Hann var ekki í Félagi íslenzkra hljóð-
færaleikara og varð því að hætta. Um
næstu áramót byrjaði hann svo í hin-
um unga K.K.-sextett,. sem þá lék i
mjólkurstöðinni. Þar lék Gunnar fram
á næsta vor. Haustið á eftir byrjaði
hann hjá Bimi R. Einarssyni, þar sem
hann hefur verið óslitið síðan. Þegar
stórar hljómsveitir hafa æft saman, þá
hefur Gunnar jafnan þótt sjálfsagður
þar sem 1. tenór. Gunnar er líklega sá
hljóðfæraleikarinn, sem mestum og bezt-
um framförum hefur tekið hér á landi
undanfarin ár. Frá því að maður heyrði
í honum sem litla altó-saxófónleikaran-
um með góðar hugmyndir og slæma tón-
inn, fyrir rúmum fjórum árum, hefur
Gunnar breytzt í afburða tenór-saxófón-
sólóista með ennþá fjölbreyttari hug-
myndir og miklu betri tón. Fyrir utan,
að á þessum tíma hefur honum tekizt
að yfirstíga hindrun flestra þeirra, sem
orðið hafa að læra á hljóðfæri hjá sjálf-
um sér: Hann les nótur viðstöðulaust.
Einnig hefur hann lært á klarinet, sem
nauðsynlegt er fyrir hvern saxófónleik-
ara að vera með, þegar hann leikur með
stórri hljómsveit.
Ég spurði Gunnar hverjir væru uppá-
halds tenór-saxófónleikarar hans úr
hópi þeirra Bandarísku. Sagði hann það
vera þá Lester Young og Stan Getz.
Aðrir jazzleikarar sem Gunnar álítur
mjög góða, eru þeir Lee Konitz altóisti
og Buddy DeFranco klarinetleikari, að
ógleymdum píanóleikaranum George
Shearing. Allt eru þetta „moderne“
jazz-leikarar og af því má auðvitað
marka hvert hugur Gunnars stefnir í
jazzmálum.
í upphafi greinar minnar gat ég þess,
að Gunnar Ormslev væri fæddur í Dan-
mörku. Hann fékk íslenzkan ríkisborg-
ararétt fyrir tveimur árum. Hann út-
skrifaðist sem tannsmiður fyrir nokkr-
um mánuðum, en þá iðn tók hann að
nema skömmu eftir að hann kom til
landsins. Hann sagðist vona, að nóg
yrði að gera fyrir hljómsveitir, svo að
hann gæti lagt tannsmíðina á hilluna og
snúið sér alveg að jazzinum, en það hef-
ur hann ekki getað gert til þessa. Hann
harmar að Björn varð að hætta við átta
manna hljómsveitina, „þar var skemmti-
legt“, sagði Gunnar, „miklu meira hægt
að gera heldur en í sex manna hljóm-
sveit“.
Hann óskar þess af hug og hjarta að
erlendir jazzleikarar geti komið hingað
og látið til sín heyra. „Gerist ekkert í
þeim málum á næstunni, er ekki hægt að
búast við öðru en að hérlent jazzlíf
lognist smám saman út af“. Kannski
full sterkt tekið til orða, og þó. ...
S. G.
Sagt í Jazzblaðinu
„Mér finnst íslenzkir hljóðfæraleik-
arar hafa mikinn skilning á jazz og tón-
gáfu skortir þá ekki, aðeins æfingu".
Sveinri Ólafsson.
.....því miður er skemmtanalífið hér
í bæ ekki nógu almennt til þess að stór-
ar hljómsveitir beri sig, en vonandi er,
að úr þessu rætist á næstu árum, því
að jazzáhuginn er altaf að aukast hjá
fólki“. Björn R. Einarsson.
„Sumum hvítum mönnum er það gefið
að leika góðan jazz, en miklu fleiri eru
þó hiní, sem hafa reynt það árangurs-
laust árum saman, og þurfum við ekki
að líta lengi í kringum okkur til að
finna þá“. Jón M. Ámason.
6 ^aizítaíiÍ