Jazzblaðið - 01.06.1951, Blaðsíða 13
Metronome kosningarnar um fremstu
jazzleikara Bandaríkjanna 1950
Tónlistarblöðin Metronome og Down
Beat láta fara fram kosningar hver
áramót um beztu jazzleikara Bandaríkj-
anna. Metronome kosningarnar eru af
öllum taldar áreiðanlegri og hefur Jazz-
blaðið birt úrslit þeirra síðastliðin þrjú
ár. Okkur bárust úi’slitin nokkuð seint í
hendur núna og munum þess vegna ekki
birta atkvæðatölur eða myndir af
fremstu mönnum, heldur minnast nánar
á þá, er freinstir urðu.
Buddy DeFranco er orðinn jafn ó-
sigrandi á klarinet og Benny Goodman
var áður, gamli maðurinn er aftur á
móti númer tvö. Þriðji er Woody Her-
man, en menn eins og Barney Bigard
og Jimmy Hamilton eru nokkru neðar.
Charlie Parker er fyrstur á altó-saxó-
fón. Á eftir honum koma Lee Konizt,
Johnny Hodges, Art Pepper og Willie
Smith.
Stan Getz er aftur fyrstur á tenói’-
saxófón. Flip Philips er hins vegar
næstur, þar næst Lester Young, og á
eftir honum hinir ungu tenóristar Warne
Marsh, sem leikur hjá Lennie Tristano,
Sonny Stitt, sem áður var góðkunnur
altóleikari en er nú talinn einn efnileg-
asti tenóristinn. Síðan kemur Chai’lie
Ventura og þá Coleman Hawkins.
Serge Chaloff er fremstur á baritón-
saxófón þriðja árið í röð. Síðan kemur
hinn ungi Gerry Mulligan, sem einnig
er mikill útsetjari. Þá kemur Harry
Carney og síðan Lee Parker.
Miles Davis er fremstur á trompet og
eru það fyrstu breytingarnar á fyrsta
sæti frá því í fyrra. Davis er nú í hópi
beztu jazzleikara Bandaríkjanna. Dizzy
Gillespie er næstur á eftir Davis, síðan
Howard McGee og svo Maynard Fergus-
son, en hann var fremstur í Down Beat
kosningunum. Þá kemur Shorty Rogers,
góður trompetleikari, sem lítið hefur
borið á. — Louis gamli Armstrong er
næstur.
Bill Harris er enn einu sinni fremst-
ur á trombón. Ætlar að verða bið á, að
fram komi annar eins trombonleikari og
hann og Kai Winding er enn einu sinni
í öðru sæti. Síðan kemur J. J. Johnson,
og þá Benny Green, sem lék hjá Charlie
Ventura.
George Shearing. er númér eitt á
píanó og Lennie Tristano númer tvö.
Þveröfugt við það, sem var í fyrra.
Bud Powell er í þriðja sæti, Oscar Peter-
son í fjórða. Síðan koma þeir Eri’oll
Garner, King Cole, A1 Haig, Stan Kenton
og Lou Levy.
Billy Bauer er einu sinni enn fremst-
ur á guitar. Svo þeir Chuck Wayne,
Laurindo Almeida, Les Paul og Irving
Ashby.'
Max Roach skipar fyrsta sæti sem
trommuleikari, en Shelly Manne er nr.
tvö. Er það eins og með píanóið, þver-
öfugt við það, sem var í fyrra. Buddy
Rich er þriðji, svo koma þeir Don La-
Framh. á bls. 21.
JoMllUií 13