Jazzblaðið - 01.06.1951, Page 18
ið um landið og leikið mikið í útvarp-
inu. Björn er formaður B. deildar Fél.
ísl. hljóðfæraleikara.
Halldór Einarsson, 2.
trombón. 25 ára. Fædd-
ur á Akranesi. Kom til
Kvíkur fyrir nokkrum
árum og fór að læra
útvarpsvirkjun. Hætti
á miðri leið og tók
til að læra ljósmyndun, sem er hans
aðaláhugamál. Mun Ijúka námi eftir
nokkra mánuði frá Ljósmyndastofunni
ASIS. Halldór tók myndirnar af Gunn-
ari Ormslev á bls. 5. Fór að læra á
trombón fyrir 4 árum og hefur leikið
í Lúðrasveit Reykjavíkur og symfóníu-
hljómsveitinni. Hefur ekki leikið í dans-
hljómsveit áður.
Þórarinn Óslcarsson,
8. trombón. 21 árs. —
Hefur verið með trom-
bón heldur styttra en
Halldór. Þórarinn hef-
ur ennfremur leikið
með Lúðrasv. Reykja-
víkur og symfóníunni. — Byrjaði með
eigin danshljómsveit síðastliðið haust í
Listamannaskálanum.
Vilhjfilmur Guðjónsson,
1. sax. (altó). 82 ára.
Vilhjálmur hóf hljóð-
færaleik með hljóm-
sveitum 10 ára gamall.
— Hann nam saxó-
fónleik í Þýzkalandi
nokkrum árum síðar. Var við framhalds-
nám í klarinettleik í USA miklu síðar,
og hefur leikið með hljómsveit í Dan-
mörku. Hér hefur hann jafnan leikið
með frémstu danshljómsveitunum, enda
varla völ á betri hljóðfæraleikara en
Vilhjálmi.
Gunnar Ormslev, 2.
saxófónn (tenór), 23
ára. Fæddur í Dan-
mörku, en kom hingað
til lands haustið 1940
og hóf nokkrum mán-
uðum síðar nám í tann-
smíði. Útskrifaður fyrir rúmu ári. —
Hafði lítið eitt leikið á hljóðfæri í Dan-
mörku, en byrjaði að leika hér nokkru
eftir að hann kom. (Varðandi nánari
upplýsingar, sjá grein um Gunnar á
bls. 4 hér í blaðinu).
GuSm. Finnbjörns-
son, 3. saxófónn (altó).
27 ára. Fæddur á ísa-
firði, þar sem hann hóf
nám í fiðluleik 12 ára.
— Lærði lítið frarnan
af eða ekki fyrr en
hann kom til Rvíkur um leið og hann
hóf nám í Verzlunarskólanum. Er út-
skrifaður þaðan, einnig útlærður mál-
ari. Hefur leikið í nokkrum kunnum
hljómsveitum undanfarin ár, á altó og
fiðlu, er nú hjá Braga Hlíðberg í Gúttó.
Ólafur Pétursson, 4.
saxófónn (tenór), 30
ára. Fyrsta hljóðfæri
Ólafs var orgel, þá har-
monika og loks tenór-
inn. — Lék lítið með
iiljómsveitum fyrr en
hann byrjaði hjá Lorange 1942. Þar var
hann til 1949. Hefur leikið hjá K. K.
í rúmlega ár. Ólafur er mjög góður jazz-
harmonikuleikari.
18 jatdUií