Jazzblaðið - 01.06.1951, Blaðsíða 19

Jazzblaðið - 01.06.1951, Blaðsíða 19
Krislján Kristjáns- son, 5. saxófónti (bari- tón), 25 ára. Kristján er til þess að gera ný- byrjaður á baritón- saxófón, en leikur engu að síður vel og er hljómsveitinni mikil stoð. Kristján byrj- aði ungur að leika á harmoniku, en tók nokkru síðar klarinettið fyrir, sem hef- ur verið hans aðalhljóðfæri. Hann leik- ur einnig á altó-saxófón. Hefur stjórnað hljómsveitum frá 1947. Magnús Pétursson, pianó, 21 árs. — Hóf orgelnám 10 ára og píanónám nokkrum ár- um síðar heima á Akureyri. — Lék þar í hljómsveitum áður en hann kom til Reykjavíkur, þar hélt hann áfram píanónámi í Tónlistarskólanum. Hefur leikið með nokkrum hljómsveitum hér, en er nú fyrri hluta vikunnar á Borginni og síðari hlutann hjá Birni R. Einarssyni. Ólafur G. Þórhálls- son, guitar, 20 ára. — Lærði á guitar hjá sjálfum sér og var far- inn að leika á skóla- dansæfingum 15 ára. Lék á sínum tíma í G.O.-kvintetinum. Lék þarnæst í hljómsv. Billich, síðan hjá Birni R., þá Steinþóri og síðan KK, þar sem hann er nú. — Gaukur er góður útsetjari, útsetur mest- allt hjá KK. Útskrifaður stúdent frá M. A. fyrir tveim árum. Hefur verið við nám í Háskólanum í vetur. Jón SigurSsson, bassi, 19 ára. — Hóf nám í bassaleik 16 ára og fór um svipað leyti að leika hjá Jan Morávek, og þar lék hann þar til hann byrjaði hjá Birni R. síðastliðið haust. Jón hefur einnig lítilsháttar leikið með symfóníuhljóm- sveitinni. Er einn efnilegasti hljóðfæra- leikarinn, er fi-am hefur komið undan- farin ár. Guðm. R. Einarsson, trommur, 25 ára. Hef- ur alltaf haft mikinn áhuga fyrir tónlist. — Fór að leika á tromm- ur 19 ára og nokkru síðar byrjaði hann í fyrstu hljómsveit Björns bróður síns, þar sem hann hefur leikið síðan. Guð- mundur hefur einnig fengist lítilsháttar við að leika á önnur hljóðfæri og náð góðum árangri. Jazzhljónileikar Jazzblaðsins Framh. af bls. 12. kvæmt ritualinu, og kom þá í ljós að ennþá eiga þeir húmorinn, þeir buðu upp á óskalag, públikum heimtaði Cal- donia, og vinirnir léku blúsin með við- eigandi hrópum. Þá var klukkan langt gengin tvö. Kynnir var Svavar Gests, og fannst mér honum einum hafa farið fram. Eins og áður er sagt var húsið ekki fullt, en áheyrendur voru góðir og nægjusamir, og tóku öllu með mesta fögnuði. Þeir færðu þó ekki jazzleikur- unum blóm, sem ef til vill hefði verið viðeigandi. J. M. Á. 19

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.