Jazzblaðið - 01.06.1951, Qupperneq 23
Þrír nýir íslenzkir danslagatextar
Eftir l\úma, EKE og „ISáttfará
VEGIR ÁSTARINNAR
(Lag: Have I told you lately...)
Vertu sœll, ég kveð þlg, kœri vinur,
klökk af þrá, ég bið þig gleym þú mér.
Vertu sæll, víð sjáumst aldrei, aldrei aftur á ný
og ást mín er horfin meö þér.
Ég aldrei framar elska mun neinn annan
eilíf þrá í huga mínum er.
Ó, vertu sæll, um eilifð elsku vinur
og ást mín er horfin með þér.
Þegar sól er sezt á bak við fjöllin
sérhvert kvöld þá hugsa ég til þín
Minningin hún lifir þó að annað hverfi mér allt
það eina er huggunin mín.
Kveðju mína kvöldsólin þér færi,
kossinn minn í geislum hennar er.
Ó, vertu sæll um eilífð, elsku vinur
og ást min er horfln með þér.
Númi.
væru birtar hér. Fyrir utan allar stefn-
urnar, sem á okkur mundu dvína.
Númi er (gerfi)-bifvélavirki að at-
vinnu, og fæst hann við „skáldskapinn“
í frítímunum, sem eru allt annað en
margir. Þrjú kvöld vikunnar stjórnar
hann gömlu dönsunum á dansleikjum í
Mjólkurstöðinni og Þórscafé. Einnig
hefur hann nokkuð fengist við að leika
með minniháttar leikflokkum (í Gúttó,
meðan hann drakk ekkert sterkara en
bjór).
Meðan til eru menn eins og Eiríkur
Karl Eiríksson, Skafti Sigþórs og Númi,
þá þurfa þeir, er gefa út danslög ekki
að óttast að lög þeirra muni ekki selj-
ast. Ef lagið er ekki líklegt til að selj-
ast vegna þess að það er ekki nógu gott,
þá mun hinn íslenzki texti bjarga því.
S. G.
IIEILLANDI ÞIG ÉG SÁ
i Lag: Orange coloured sky).
Ein(n) í laufguðum lund
lá ég í móki.
Er líkt eins og leiftri fyrlr brá.
Hæ! Hó! Hæ, hæ og hó.
heillandi þig ég sá.
Eíns og brennandi bál
byltist í æðum
mér blóðið — og hjartað örar slær.
Hæ! Hó! Hæ, hæ og hó.
Hrifin(n) ég geng þér nær.
Ég 115 í ljúfum draumi
og lít í augu þér,
og þá finnst mér ég svífa í svimandi hæð
yfir sveimandl iðandi stjarnanna her.
Hann (hún) er hér, er hjá mér
hér hjá mér!
Ég er syngjandi sæl(l),
sól er í hjarta,
þvi saman við erum, ó það hnoss.
Hæ! Hó! Hæ, hæ og hó.
Hugljúfan ástar fæ ég koss.
EKE
„DRAUMUR ÖSKUBUSKU“
(Lag: „A dream is a wish your heart makes",
úr myndinni ÖSKUBUSKA).
Hver ungmeyja á sér drauma,
sem enginn vita mál
og hugsar við sína sauma
um sveininn með augun blá.
Hún líður í ljúfum draumi
um loftin blá og himininn.
í fögi-um draumalandsins dölum,
í háum hallar sölum,
þar hittir hún prinslnn sinn.
„Náttfari".
Eftlrprentmi á textunum er stranglega bönnuð.
SAGT í JAZZBLAÐINU . ..
„Álit mitt á Be-bop er, að það sé stórt
spor í rétta átt, til framþróunar góðrar
jazztónlistar“. Baldur Kristjánsson.
fatUii 23