Jazzblaðið - 01.09.1951, Síða 12

Jazzblaðið - 01.09.1951, Síða 12
sex ára Þann 1. október eru sex ár síðan Aage Lorange gerði samning við Sjálfstæðismenn um að leika í Sjálfstæðishúsinu, sem þá var verið að byggja. Hljómsveitin byrjaði að æfa og hélt uppi reglubundnum æfingum fram til maí næsta árs, en þá byrjuðu þeir að leika í Sjálf- stæðishúsinu. Hljómsveitin var því búinn að leika í húsinu í fimm ár í maí síðast- liðinn. Þeir, sem voru í hljómsveitinni auk Aage, voru Þorvaldur Steingrímsson með altó- saxófón, klarinet og fiðlu, Poui Bernburg trommuleikari, Skafti Sigþórsson með altó og fiðlu, Ólafur Pétursson tenór-saxófón og harmoniku og Jónas Dagbjartsson með trompet og fiðlu. Sjöunda manninn réði Aage í hljómsveitina og var það Einar B. Waage, sem lék á saxófón og kontrabassa, en Einar byrjaði ekki strax að æfa með hljómsveitinni, þar sem hann var við nám í Bandaríkjunum. Hljómsveit þessi varð strax stærsta og fullkomnasta danshljómsveit hérlendis, var sama við hvaða tegund dansmúsikar hún reyndi, allt léku þeir með jafn góðum árangri. Sjálfstæðishúsið var fyrst í stað rekið með svokölluðum „restrasjónum", en það varð aldrei mikil aðsókn að þeim, svo að nokkru síðar var farið út á þá braut að halda dansleiki, sem strax urðu mjög vin- sælir og má segja að síðan hafi verið stöð- ug aðsókn að dansleikjum þar og sennilega hvergi eins oft útselt og þar. Hljómsveit Aage Lorange 12 ^azzlfaíiÍ

x

Jazzblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.