Jazzblaðið - 01.03.1952, Síða 4
ÍSLENZKIR H L J □ Ð F Æ RALEI KARAR
GRETTIR wmm
Einn kunnasti hljóðfæraleikarinn úr
hópi hinna yngri er eflaust Grettir
Björnsson. Þó að hann hafi lítið leikið
í reglulegri hljómsveit, þá hefur hann
komið víða fram, bæði í Reykjavík og
úti á landi undanfarin ár, og fyrir hinn
ágæta harmonikuleik sinn hefur hann
hvarvetna aflað sér vinsælda.
Grettir fæddist að Bjargi í Miðfirði
2. maí 1931. Hann hefur að mestu leyti
alizt upp í Reykjavík. Hann byrjaði að
leika á harmoniku ellefu ára gamall og
er hann einn þeirra fáu, er hafa haft
þúsundir til að hlusta á sig í fyrsta
skipti, sem þeir koma fram opinberlega.
Hann kom sem sé fyrst fram í barna-
tíma Ríkisútvarpsins, þá tólf ára að
aldri. Bróðir hans lék einnig með hon-
um á harmoniku, og var hann þá aðeins
níu ára. Skömmu eftir fermingu fór
Grettir að leika á dansleikjum hingað
og þangað. Það var ekki fyrr en vetur-
inn 1948—49 að Grettir lék í hljómsveit,
en það var á Akureyri, og var þá Stein-
þór Steingrímsson píanóleikari í hljóm-
sveitinni ásamt þeim Einari Jónssyni
trommuleikara og Jóni Sigurðssyni
trompetleikara. — Daufur bær, Akur-
eyri, sagði Grettir — og lögreglan af-
skiptasöm. Um vorið komu þeir Stein-
þór og Grettir til Reykjavíkur, en höfðu
litla viðdvöl og brugðu sér til Kaup-
mannahafnar ásamt Marínó Guðmunds-
syni trompetletikara. — Stóð til að
afla sér fjár og frama, en lítið hafðist
upp úr krafsinu, því að Danir eru sínkir
á hið fyrrnefnda og hins síðarnefnda
afla menn sér sízt í Danmörku. — En
skemmtilegra sumar segjast þeir allir
varla hafa upplifað til þessa. Grettir
eyddi reyndar nokkrum hluta þess í stað
þeim, er fyrir mörgum árum stóð mikill
frægðarljómi af, þ. e. a. s. Nýhöfninni.
Þar spilaði hann í nokkra mánuði og
gerði það gott — kannske eini íslenzki
hljóðfæraleikarinn, sem gat fengið sér
nýjan frakka út á sumarhýruna.
Veturinn 1949—50 lék hann aðallega
í hinum margnefnda „lausabusiness" að
undanskildum nokkrum vikum, sem hann
lék í hljómsveit Jónatans Ólafssonar að
Röðli. Aftur tók lausabusinessinn við og
allt fram til vorsins 1951, er hann réðst
í hljómsveit þá, er Svavar Gests fór með
til Vestmannaeyja og lék þar fram í
byrjun júní. Þá lék hann áfram í hljóm-
sveit þeirri, er Svavar byrjaði með í
Breiðfirðingabúð og leikur þar enn, er
þetta er ritað.
Grettir lærði harmonikuleik hjá Braga
Hlíðberg og má eflaust þakka því hinn
ágæta leik hans. Þó að Grettir standist
Braga hvergi snúning, þá er hann þó
einn hinna fáu harmonikuleikara, ásamt
Braga, sem eitthvað hafa gert að því að
koma fram opinberlega sem einleikarar.
Hefur Grettir komið fram hjá „Bláu
stjörnunni" og víðar.
Hann hefur litið eitt fengist við að
leika á klarinet og var Egill Jónsson
kennari hans. Aldrei hefur hann þó lagt
áherzlu á klarinetleikinn, en sem komið
er má marka, að hann ætti engu minni
framtíð fyrir sér á klarinetið en har-
4 JazMaáií