Jazzblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 6

Jazzblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 6
• ÚR EINU Nýjar Jazz-stjörnur. Á jam-session, sem Jazzklúbburinn hélt í Breiðfirðingabúð 10. febr. komu fram nokkrir ungir og efnilegir jazzleik- arar. Ber þar fyrst að telja Gunnar Sveinsson trommuleik- ara í hljómsveit Bald- urs Kristjánssonar í Tívoli. Gunnar kom nú í fyrsta sinni fram sem vibrafónleikari, en á það hljóðfæri hefur hann verið að læra undanfarið ár. Leikur hans á session- inni spáði góðu um framtíð Gunnars, sem vibrafónleikara. Hann hefur þegar yfir mikilli tækni að ráða og virðist eiga yfir allgóðum hugmyndum að ráða hvað sólóar snertir. Með sama áframhaldi mun Gunnar komast í hóp okkar beztu jazzleikara. Á þessari sömu session komu einnig fram fjórir ungir piltar að nafni Sig. Guðmundsson píanóleikari, Ólafur Stephensen harmonikuleikari, Andrés Ingólfsson klarinetleikari og Hörður Guðmundsson trommuleikari. — Piltar þessir eru allir kornungir, sá fyrsti ný- lega átján ára, næstu tveir sextán og sá síðasti seytján. Leikur þeirra var hinn ágætasti og leikur enginn vafi á því, að hér eru mikil efni á ferðinni. Blaðið mun fylgjast með framgangi þeirra af miklum áhuga og verður væntanlega rætt nánar um þá síðar. Réttum mánuði fyrir þessa umræddu jam-session, sem var einhver sú bezt heppnaða, sem haldin hefur verið til þessa, var önnur session og var hún einn- 6 í ANNAÐ • ig haldin á vegum klúbbsins. Fór hún fram í Listamannaskálanum.. Áheyrend- ur voru þar mun fleiri en því miður var músikin ekki að sama skapi. Stœröfrœföikunnátta. Magnús Pétursson píanóleikari átti tuttugu og tveggja ára afmæli hinn 12. febrúar og færði kona hans honum myndarstrák í afmælisgjöf. — Nokkrum dögum áður hafði Magnús samið nýtt danslag og texta við það. Lagið kallar hann „Halló“, og mætti segja mér að það hafi verið það fyrsta, sem hann sagði, þegar hann sá afmælisgjöfina. Maöur, líttu þér nœr. í þætti Péturs Péturssonar fyrir nokkru í Ríkisútvarpinu var útvarpað frá hinum þekkta Kaupmannahafnar- skemmtistað „Scala“. Hljómsveitin þar lék m. a. tvö lög eftir Oliver Guðmunds- son og hefur mér verið sagt, að þeir leiki þau oft. Lög þessi eins og öll önn- ur, sem Oliver hefur gert, eru mjög falleg. Er sannast að segja skömm til þess að vita, að hljómsveitir hér skuli ekki leggja meiri rækt við að leika lög eftir innlenda höfunda. Þetta var rætt hér í blaðinu fyrir þó nokkru og hefur engin hljómsveitanna tekið tillit til þess. — Það vita allir, að mörg hinna inn- lendu laga eru engu lakari en hin er- lendu dægurlög, en enginn kemur því í verk að leika þau. Kannske er það bara af áhugaleysi. Hvernig væri nú að koma í umferð þó ekki væri nema þremur eða fjórum lögum í hverri hljómsveit?

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.