Jazzblaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 36

Jazzblaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 36
því miður léku þeir eingöngu samba- músík! Nýlega hefur verið hægt að fá Banda- rísku jazzblöðin „Metronome“ og „Down Beat“, keypt í Þýzkalandi og einnig hef- ur einu plötufyrirtæki tekist að gefa út nokkrar plötur með amerískum jazzleik- urum, en þær eru allt of fáar, sem kom- ið er. Vonandi lagast þetta nú á næst- unni, ég hef t. d. von með að koma út plötum með amerískum jazzleikurum bráðlega. Nokkuð er til af plötum með þýzkum jazzleikurum og lék Rex Stewart inn á nokkrar plötur hér. Svo að ég snúi mér aftur að því efni, sem ég byrjaði á, jazztímariti. Nokkrir fjölritaðir bæklingar hafa verið gefnir út hjá jazzklúbbunum, en fullkomið blað er enn ekki fyrir hendi. Það hafði verið í undirbúningi í langan tíma að gefa út blað, m. a. kom út fyrsta heftið af því fyrir ári, en síðan ekki söguna meir. — Bráðlega er von á lítilli bók á mark- aðinn, sem ég hef ritað um upphaf jazz- ins, þróun, og helztu snillinga hans. Einnig má þar finna yfirlit yfir margar góðar plötur og skýringar á, hvernig þeirra verði bezt notið. Skoðun mín er sú, að með tímanum takist að jafna sundrungina í jazzmál- um Þýzkalands. Bandaríkjamenn standa að AFN og „Jazz Conference“. Bret- arnir hafa BFN og „Anglo-German- Swing-Club“. Þjóðverjarnir hafa svo jazzklúbba, þar sem samvinnan er enn of lítil. Grammofónplötur eru frekar af skornum skammti og jazzunnendur pen- ingalitlir sökum atvinnuskorts, svo þeir hafa ekki ráð á að kaupa þær. Hljóm- sveitirnar skortir húsnæði til að leika í, þar sem svo margir staðir fóru í rúst- ir í stríðinu, og enn ráðum við ekki yfir jazzblaði vegna pappíi'sskorts. Samt vinnum við ötullega fyrir hljóm- list okkar, jazzinn. Og þegar við upp- skerum það, sem við höfum sáð, getum sett á stofn blað og sameinað áhuga- mennina, verður ekki langt þangað til okkur gefst aftur tækifæri til að hlusta á hljómsveitir Duke Ellington oð Louis Armstrong og fleiri. Þá þarf ekki að óttast að hljómleika- salirnir verði tómir — og að dagblöðin kalli þetta villimannamúsík. JAZZHLJÓMLEIKARNIR Framh. af bls. 29. eftir Eyþór, og var það eins og hið fyrra, mjög vel gert. Leikur Eyþórs í þessu lagi sem hinum, var borinn uppi af jazztilfinningu og frum'egum hug- myndum. Jón var öruggur á bassann. Að lokum kom svo „rúsínan í pylsu- endanum". Það var óauglýst atriði, tólf manna hljómsveit, sem þeir Krist- ján og Björn höfðu æft. Lék hún tvö lög. Hið fyrra hét „Black Velvet“, og átti Jón Sigurðsson þar ágæta trompetsóló. Saxarnir voru dálítið ósamstilltir, sem ekki var nema von, þar sem mennirnir voru úr sinni hvorri hljómsveitinni. Síðara lagið, og um leið síðasta lag hljómleikanna, var „Father Knicker- bopper“. Útsetning þess var mjög skemmtileg og lagið virtist vera vel æft og prýðilega leikið. Svavar Gests var kynnir og leysti hann það hlutverk prýðisvel af hendi, var skemmtilegur og lét brandara óspai't fjúka, sem sagt: fyrsta flokks kynnir. í heild má segja að hljómleikarnir hafi verið vel undirbúnir og ágætlega heppnaðir. Baldur Kristjánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.