Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Síða 16
Tímarit Tónlistarfélagsins
FiÖIusnillingurinn Ernst Drucker
heldur opinbera hljómleika í Gamla Bíó fimmtudaginn 24.
febrúar n. k., með aðstoð Árna Kristjánssonar píanóleikara.
Á þessum hljómleikum leikur hann þessi verk:
Fiðlukonsert eftir Mendelssohn,
Fiðlukonsert eftir Paganini,
Fiðlusónötu eftir Mozart,
Fiðlusónötu eftir Tartini (Djöflatrillusónötuna)
og auk þess dansa eftir Dvorák o. fl.
Til hádegis 23. febrúar geta styrktarmeðlimir Tónlistar-
félagsins tryggt sér beztu sætin, með því að panta þau í
Nótnaverzlun K. Viðar.
Óperettan »Bláa kápan«
Tónlistarfélagið sýnir um þessar mundir óperettu, sem í
íslenzku þýðingunni hefir hlotið nafnið ,,Bláa kápan“.
Músikin er eftir Walter Kollo. Haraldur Björnsson hefir æft
leikendurna, og hefir á hendi leikstjórn, en Dr. Franz Mixa
annast hina músiklegu stjórn. Óperetta þessi fékk alveg
fádæma góðar viðtökur á frumsýningunni og hin beztu
ummæli allra blaða, bæði fyrir leik og músik. Hún hefir nú
verið sýnd sex sinnum fyrir troðfullu húsi og hver aðgöngu-
miði seldur löngu fyrir hverja sýningu.
Leikritið sjálft er skemmtilegt sambland af kýmni og
alvöru, en músikin „typisk“ óperettumúsik, létt og lærist
fljótt, en gleymist líka jaínfljótt.
16
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.