Musica - 01.10.1948, Blaðsíða 15
dauða Banquos, en órólegur yfir, að syni 'hans tókst
að sleppa.
Þegar hann ætlar að ganga til sætis síns, sér hann
Banquo afturgenginn sitja í hásætinu, yfir sig hrædd-
ur skipar Macbeth afturgöngunni að fara og hún hlýð-
ir.
Gestirnir sjá ekki neitt, og verða í senn undrandi
og órólegir yfir hinni undarlegu framkomu konungs,
en kona hans syngur þá fjöruga drykkjuvísu, en þá
birtist afturgangan aftur, og skelfingu lostinn særir
Macbeth drauginn á braut í annað sinn.
f N > '—s
Uie • r •' 'of rct-to 1 /Jc - cen de »-e
Aría Macbeths í 2. þætti.
3. þáttur.
Macbedh fer aftur til galdrakerlinganna og leitar
ráða þeirra. Kerlingarnar kalla fram anda, og fyrst
kemur hjálmklætt höfuð sem ræður Macbeth til að
varast Macduff, næst kemur fram blóðugt barn og
segir að enginn fæddur af konu geti skaðað hann og
þriðji andinn, barn með konungskórónu á liöíði og
laufgaða grein í hendi lofar Macbeth, að enginn skuli
sigra ’hann fyrr en Birnam skógurinn gangi upp að
höll hans.
3. þáttur.
Hugrakkur yfir þessum hliðhollu spádómum heimt-
ar Macbeth að fá að sjá afkomendur Banquos og þá
ganga átta konungar fram fyrir hann og sá síðasti
þeirra, er hefur svip Banquo, heldur spegli fyrir Mac-
beth og þar sér hann stóran hóp í viðbót ganga fyrir
sig. Skelfingu lostinn af þessari sjón fellur Macbeth
í yfirlið. Þegar hann vaknar úr yfirliðinu stendur kona
hans hjó 'honum og segir hann henni spádómana og
ræður hún Madbeth að Mta drepa Macduff og son
Banquos.
4. þáttur, 1. hluti.
Hinir ógæfusömu skotar sem hafa orðið að flýja
undan dfríki Maobeths kvarta undan hinum illu ör-
lögum. Macduff syrgir konu sína og börn, sem morð-
ingjar Madbeths hafa myrt.
Nú kemur hinn enski her undir stjórn Malcolms,
sem er kominn til að endurheimta konungdæmið.
Þegar þeir koma að Birnam skógi ákveður hver
maður að brjóta sér grein af trjánum til þess að geta
betur falið framsóknina.
4. þáttur, 2. hluti.
I höll Macbeths kallar þjónustustúlka frúarinnar á
lækni, og er hann kemur verður hann áhorfandi að
áhrifamiklum atburði. Lady Macbeth gengur um í
svefni og lifir aftur nóttina, er Skotakonungur var
myrtur. Henni finnst blóð vera á höndum sér og kvart-
ar sáran yfir, að þær verði ekki hreinar, hve mikið
sem hún þvoi þær.
4. þáttur, 3. hluti.
I einum af sölum hallarinnar bíður Macbet'h bardag-
ans og 'hann viðurkennir, beiskur í huga, að hans
muni aðeins vera minnst með ’hatri ef hann tapi þess-
um bardaga.
Hann sýnir kæruleysi, er hann fréttir dauða konu
sinnar, en skelfist, er hann fréttir að Birnam skógur
sæki að höllinni. Hann geysist út í bardagann og lendir
í einvígi við Macduff, sem segir Macbeth að hann sé
ekki fæddur, 'heldur hafi verið tekinn með uppskurði
frá móður sinni, og rekur svo Macbeth í gegn.
Allir streyma nú að hylla Malcolm hinn rétta kon-
ung Skota óg allir gleðjast yfir að vera frelsaðir frá
kúgaranum.
Tónlistarfélaginu hefur tekizt að ráða hinn fræga
píanóleikara Arthur Rubinstein til að halda hér hljóm-
leika. Ekki er vitað 'hvenær hann muni sjá sér fært að
koma hingað en vonandi verður ekki langt að bíða.
Á Tónlistarfélagið þakkir skilið fyrir að hafa ráðizt í,
að ráða snillinginn 'hingað.
MUSICA 15