Musica - 01.12.1949, Side 4

Musica - 01.12.1949, Side 4
Merhjlegt brautryðjcndastarf. Viðtal við Pél Kr. Pálsson orgelleikara stjórnanda hins nýstofnaða barnakórs útvarpsins Fregnin um að ríkisútvarpið hefði ákveðið að stofna barnakór vakti mikla athygli í hópi tónlist- aráhugamanna hér á landi, og er fréttist að Páll Kr. Pálsson, orgelleikari hefði verið ráðinn stjórn- andi kórsins, voru allir sammála um að hæfari mann myndi vart hægt að fá, til að taka að sér þetta erfiða og erilssama starf. Barnatímar útvarpsins hafa undanfarin ár ver- ið í miklum vandræðum með að fá gott dagskrár- efni handa yngstu hlustendunum, og yfirleitt hafa ráðist þangað skemmtikraftar er ekki hafa fengið rúm annarsstaðar í dagsskrá útvarpsins, þetta á þó ekki við þá er sagt hafa sögur og flutt ljóð, heldur um þá er leikið hafa á hljóðfæri og sungið, í tímanum. Barnatíminn er sérstaklega áhrifamikill dag- skrárliður, því að börnin taka gagnrýnislaust við því er að þeim hefir verið rétt, en hinir fullorðnu geta aftur á móti gagnrynt, og láta ekki það er þeir álíta skaðlegt, hafa áhrif á sig. Slæm tónlist hlýtur því að hafa slæm áhrif á börnin, skaða smekk þeirra og skapa þeim rang- ar hugmyndir um tónlistina og gildi hennar. Með stofnun barnakórsins er stórt skref tekið í rétta átt, og ber ríkisútvarpinu þakkir fyrir fram- sýni og dug, og sérstaklega þó Þorsteini Ö. Sthep- hensyni sem er aðalhvatamaður um kórstofnunina. Það er mjög ánægjulegt að eiga viðtal við Pál Kr. Pálsson, hann hefir ákveðnar skoðanir á hlut- verki sínu, og er óhræddur við að halda þeim fram. kosið á þing til bregðast ekki menningu íslands á þessum tímamótum hennar. Við munum fylgjast af kostgæfni með afgreiðslu þessara mála á þingi og vitanlega minnast þeirra fulltrúa er styðja málstað okkar. Einnig skilur hann vel þau vandamál sem tón- list okkar á við að etja og er óhræddur við að við- urkenna þau, og reynir jafnframt að benda á ráð er að gagni koma við lausn þeirra. „Hver er aðdragandinn að stofnun barnakórs- ins?“ „Það er Þorsteinn Ö. Stephensen er á frum- kvæðið að stofnun kórsins, en hann er eins og kunnugt er, stjórnandi barnatímans. Barnatíminn er sérstök útvarpsdagskrá, með sérstökum stjórnanda, og þessi dagskrárliður hefir verið í miklum vandræðum með frambærilegt efni a. m. k. tónlist. Barnakórinn á að syngja milli atriða barna- tímanns til að samræma þau, og auk þess á hann að syngja sem sérstakur dagskrárliður. „Þetta er í fyrsta sinn er tilraun er gerð til að stofna barnakór?“ „Að því er ég bezt veit, er þetta í fyrsta sinn, sem börn hér í Reykjavík fá kennslu í söng og nótnalestri“. „Hafa skólarnir ekki orðið yður til stuðnings við kórstofnunina?“ „Ég fékk minni aðstoð frá skólunum en ég bjóst við, og það er athyglisvert hve litla rækt skólarnir leggja við söngkennsluna“. „Hvernig verður æfingum kórsins háttað?“ „Kórnum er skift í tvær deildir, í yngri deildinni eru börn á aldrinum 8—10 ára, sem ég mun aðal- Megi hið nýja ár er í hönd fer, láta þessar óskir íslenzkra listamanna rætast. Tónlistarblaðið Musica óskar öllum vinum sín- um og velunnurum gleðilegra jóla og færsæls nýs árs. 4 MUSICA

x

Musica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.