Musica - 01.04.1950, Blaðsíða 2
til lesendanna
• o •
EFN I
Viðtal við
ungfrú Ruth Hermanns.
Igor Stravinsky, æfiágrip.
Lag á nótum:
Sumarlag, eftir Sigurð H. Briem.
Kína geymir enn hinn upprunalega skyld-
leika tónlistarinnar og tungunnar,.
eftir Fritz A. Kuttner.
Myndasíðan:
Umdeildasti söngvari vorra tíma,
Paul Robeson.
Bréfakassinn.
Tæknisíðan.
Víðsjá.
og margt fleira.
Forsíðumynd af ungfrú Ruth Hermans.
Tónlistarblaðið „MUSICA"
Tónlistartímarit, kemur út 10
sinnum á áni. — Útgefandi:
Drangeyiarútgáfan. — Ritstjóri
og ábyrgðarmaður: Tage
Ammendrup. Ritstjórn og af-
greiðsla Laugaveg 58, símar 3311
og 3896. •— Áskriftarverð 32 kr.
fyrir árið. — Sent burðargjalds-
frítt um al'lt land.
Blaði var flett í sögu íslenzkrar tónlistar, er
dr. Páll Isólfsson sagði í viðtali við blaðamenn í
fyrra mánuði, að stofnuð hefði verið fullkomin
sinfóníuhljómsveit hér í Reykjavík.
Þetta er að vísu ekki alls kostar rétt hjá Páli,
sinfóníuhljómsveitin, sem stofnuð var vantaði
töluvert upp á að vera fullkominn sinfóníuhljóm-
sveit, en aftur á móti mætti segja að þetta sé full-
komnasti vísir af sinfóníuhljómsveit er enn hefir
komið fram hér á landi.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir samþykkt fyrir
forgöngu borgarstjóra Gunnars Thoroddsen, að
veita hljómsveitinni styrk að upphæð 150.000.00
krónur fyrir fyrri helming fjárhagsársins, og er góð
von með að það sem á vantar verði veitt, á seinna
helmingi fjárhagsársins.
Nú stendur aðeins á samþykki alþingis eins,
um hver verði framtíð þess óskabarns þjóðarinn-
ar, og látum okkur vona, að alþingi skilji hvað hér
er á húfi.
Annar af merkustu viðburðunum í menningar-
sögu okkar er opnun Þjóðleikhússins, sem boðar
ekki aðeins þáttaskifti fyrir leiklistarlíf okkar,
heldur og allt menningarlíf þjóðarinnar.
Það er táknrænt, að fyrsta sýningin í Þjóðleik-
húsinu verður á sumardaginn fyrsta.
Við íslendingar, jafn fámennir og við erum, get-
um verið stoltir af því, að hafa hrundið þessum
tveim merku málum í framkvæmd, og við megum
vera vissir um að listamenn okkar, munu ekki láta
sinn hlut eftir liggja, er þeir hafa fengið viðunandi
starfsskilyrði.
Nokkuð hefir verið ákveðið um efni næsta tbl.,
t. d. verður þar lag eftir hið merka finnska tón-
skáld Ilmari Hannikainen, með sænskum texta,
eftir Nino Runeberg, og í 5. tbl. verður hið ást-
sæla og yndislega lag Edwards Grieg „Jeg elsker
dig“.
I næsta hefti verður og myndasíða er sýnir
sinfóníuhljómsveitina að æfingu auk margs annars.
2 MUSICA