Musica - 01.04.1950, Blaðsíða 3
3. ÁRGANGUR
ÍHluMca
APRÍL 1950 3. TÖLUBLAÐ
Eg mun sakna Akureyrar
Segir ungfrú Ruth Hermanns
Fréttaritari yðar hafði stutt viðtal við ungfrú
Ruth Hermanns, skömmu eftir áramótin, en hún
var þá á ferð hér í Reykjavík, til að leika inn á
plötur fyrir ríkisútvarpið.
Ungfrú Hermanns hafði mikið að segja frá starfi
sínu á Akureyri, en þar hefir hún eins og kunnugt
er kennt fiðluleik við Tónlistarskólann síðustu
tvö árin.
Ungfrú Hermanns er nú að flytja til Reykjavík-
ur, og verður mikið tjón fyrir Tónlistarskólann á
Akureyri að missa jafn færan fiðlu-kennara.
Ungfrú Hermanns er full eldlegs áhuga fyrir
starfi sínu, hún talar hratt . . . íslenzku . . . stund-
um bregður hún fyrir sig þýzku, ef hún finnur
ekki orð til að lýsa því, er hún vill bregða upp
. . . hlátur hennar er snöggur og hvellur . . . og
allar hreyfingar vitna um mikið „energy“ og skap-
festu . . . og fljótfundið er, að þarna er á ferð-
inni sannur íslandsvinur, er vill leggja fram krafta
sína til eflingar íslenzkri tónlist.
— Hvernig líkaði yður dvölin á Akureyri?
— Ef aðstæður væru hagstæðari til að byggja
upp tónlistarlífið á Akureyri með hjálp nægilegra
margra áhugasamra listamanna, myndi ég ekki
hafa viljað yfirgefa þennan vinalega bæ og hina
elskulegu íbúa hans, en því miður er verksvið
mitt þar of lítið, og ég vonast til að fá betra tæki-
færi til að nota krafta mína í þágu þessa lands hér
í Reykjavík.
— Finnst yður íslenzkir nemendur músikalskir,
svona yfirleitt?
— Já, yfirleitt fannst mér nemendur mínir hafa
heilbrigða og eðlilega tónlistarhæfileika, og ég
undraðist mjög eitt sinn, er ég hafði námskeið við
Menntaskólann á Akureyri, að meira enn helm-
ingur þátttakendanna gat leikið lítið lag á fiðl-
una, eftir aðeins eina kennslustund.
— Hafa nokkrir af nemendum Tónlistarskóla
Akureyrar ákveðið að gera tónlistina að æfistarfi
sínu?
— Nei, jafnvel þótt margir nemendanna hafi
ágæta hæfileika til framhaldsnáms, virðist enginn
þeirra ætla að leggja tónlistina fyrir sig.
Einn nemandi kemur þó með mér til Reykja-
víkur, er það stúlka sem er miklum hæfileikum
búin og mun hún halda áfram námi sínu hjá mér.
— Hvað segið þér um íslenzkt tóniistarlíf ?
— Án fastrar hljómsveitar getur ekki verið um
reglulegt tónlistarlíf að ræða.
Island hefir annars á að skipa mörgum ágætum
listamönnum, t. d. Birni Ólafssyni, Árna Kristjáns-
syni, Lansky-Otto, Abraham og Dr. Urbantschitsch
Ekki vil ég gleyma Páli ísólfssyni. Hann gerði
mér eitt sinn þá ánægju að leika fyrir mig Chaccon
eftir sjálfan sig á dómkirkjuorgelið. Og er Páll
ekki aðéins mikill orgelleikari heldur og mikið
tónskáld.
— Hvað segið þér okkur um íslenzka tónlist?
— íslenzka tónlist heyrði ég fyrst árið 1935 í
Þýzkalandi, voru leikin verk eftir Jón Leifs, sem
er mikils metinn í heimalandi mínu, annars hafa
íslendingar samið lítið fyrir fiðlu.
— Hverskonar tónlist leikið þér helst?
— Eg hefi mest dálæti á Bach, Mozart, Beethov-
en og Brahms, en þó leik ég einnig verk eftir hin
nýrri tónskáld, sérstaklega þó hin rússnesku.
MUSICA 3