Musica - 01.04.1950, Page 12
Söngfélag verkalýðsfélaganna stofnað
með 73 meðlimum.
Stofnfundur Söngfélags verkalýðsfélaganna í
Reykjavík var haldinn 27. febrúar s. 1. í skrifstofu
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna að Hverfisgötu 21
Stofnendur félagsins voru 73 meðlimir úr hinum
ýmsu félögum innan Fulltrúaráðsins.
í stjórn félagsins voru kosnir: Formaður Magn-
ús Jóhannsson, járnsm.; ritari Guðrún Krist-
mundsdóttir, afgrst.; gjaldkeri Eiríkur Þorleifsson,
rafv. — Stofnfundurinn samþykkti að fela stjórn-
inni að semja uppkast að lögum og starfsreglum
fyrir félagið, sem lagt verði fyrir næsta fund til
afgreiðslu. — Samþykkt var á fundinum að ráða
Sigursvein D. Kristinsson, söngstjóra kórsins.
Tónlistarviðburður.
Finnska söngkonan Tii Niemela, hélt song-
skemmtun í Gamla Bíó í síðastliðnum mánuði,
með aðstoð manns síns Pentti Koskimies.
Frú Niemela er mikil „lieder“ söngkona, með
sjaldgæfan eiginleika til að hrífa áheyrendur sína
með sér.
Fyrst á söngskránni voru fjögur lög eftir Fr.
Schubert, er frúin flutti skýrt og látlaust, þar-
næst voru tvö lög eftir Ragström er frúin flutti
afar fallega, sérstaklega „Den enda stunden" við
texta Runebergs.
Aftur á móti tókst frúnni ekki eins vel með lög
Siebiliusar, að laginu „Illalle" undanteknu, er hún
söng á finnsku, og var eitt af því fallegasta er frúin
söng.
Siebilius krefst oftast mikils raddstyrks og
raddþols og frúin hafði hvorugt til að bera.
Lag Y. Kilpinen, „Lánge áro mina kváller“ var
aðdáanlega flutt, af næmri tilfinningu og fínleik,
og sama má segja um þrjú þýzk lög, við texta
Hermann Löns.
Síðast á efnisskránni voru fjallasöngvar eftir
Törmánen, flutti frúin söngvana með næmri til-
finningu, en nokkuð háði það henni, hve illa hún
kunni textana.
Frúin var margkölluð fram og söng tvö aukalög.
Maður hennar Pentti Koskimies lék undir á
flygelinn af mikilli snilld og nákvæmni.
Heimsókn þessara finnsku listahjóna, hefir ekki
aðeins styrkt bönd frændsemi þessara tveggja
þjóða, heldur og sýnt okkur hvílíka listamenn
Finnland hefir upp á að bjóða. T. A.
77/ Nitmclii og maður hennar. (Foto: Pétitr Thomscn.)
12 MUSICA