Musica - 01.04.1950, Síða 12

Musica - 01.04.1950, Síða 12
Söngfélag verkalýðsfélaganna stofnað með 73 meðlimum. Stofnfundur Söngfélags verkalýðsfélaganna í Reykjavík var haldinn 27. febrúar s. 1. í skrifstofu Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna að Hverfisgötu 21 Stofnendur félagsins voru 73 meðlimir úr hinum ýmsu félögum innan Fulltrúaráðsins. í stjórn félagsins voru kosnir: Formaður Magn- ús Jóhannsson, járnsm.; ritari Guðrún Krist- mundsdóttir, afgrst.; gjaldkeri Eiríkur Þorleifsson, rafv. — Stofnfundurinn samþykkti að fela stjórn- inni að semja uppkast að lögum og starfsreglum fyrir félagið, sem lagt verði fyrir næsta fund til afgreiðslu. — Samþykkt var á fundinum að ráða Sigursvein D. Kristinsson, söngstjóra kórsins. Tónlistarviðburður. Finnska söngkonan Tii Niemela, hélt song- skemmtun í Gamla Bíó í síðastliðnum mánuði, með aðstoð manns síns Pentti Koskimies. Frú Niemela er mikil „lieder“ söngkona, með sjaldgæfan eiginleika til að hrífa áheyrendur sína með sér. Fyrst á söngskránni voru fjögur lög eftir Fr. Schubert, er frúin flutti skýrt og látlaust, þar- næst voru tvö lög eftir Ragström er frúin flutti afar fallega, sérstaklega „Den enda stunden" við texta Runebergs. Aftur á móti tókst frúnni ekki eins vel með lög Siebiliusar, að laginu „Illalle" undanteknu, er hún söng á finnsku, og var eitt af því fallegasta er frúin söng. Siebilius krefst oftast mikils raddstyrks og raddþols og frúin hafði hvorugt til að bera. Lag Y. Kilpinen, „Lánge áro mina kváller“ var aðdáanlega flutt, af næmri tilfinningu og fínleik, og sama má segja um þrjú þýzk lög, við texta Hermann Löns. Síðast á efnisskránni voru fjallasöngvar eftir Törmánen, flutti frúin söngvana með næmri til- finningu, en nokkuð háði það henni, hve illa hún kunni textana. Frúin var margkölluð fram og söng tvö aukalög. Maður hennar Pentti Koskimies lék undir á flygelinn af mikilli snilld og nákvæmni. Heimsókn þessara finnsku listahjóna, hefir ekki aðeins styrkt bönd frændsemi þessara tveggja þjóða, heldur og sýnt okkur hvílíka listamenn Finnland hefir upp á að bjóða. T. A. 77/ Nitmclii og maður hennar. (Foto: Pétitr Thomscn.) 12 MUSICA

x

Musica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.