Bankablaðið - 01.12.1987, Síða 7
Framtíð bankakerfisins
7
Fiiðbert Traustason:
Staða og þróun tæknimála
bönkum og sparisjóðum
Oft hef ég fengið erfitt verkefni, en
sjaldan eins og það að skrifa grein um
stöðu og framtíð tæknimála hjá bönk-
unum og sparisjóðunum. Breytingar í
tölvuheiminum eru svo örar, bæði í hug-
búnaði og sérstaklega í vélbúnaði, að
erfitt er að ímynda sér hvað kemur næst
á markað.
En ákvarðanir hjá stórum fyrirtækj-
um eins og bönkum hafa alltaf nokkurn
aðdraganda, þannig að vonandi stenst
flest af því, sem ég nefni í þessari grein.
Eins og við öll vitum, eru flestir af-
greiðslustaðir bankanna á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, svo og nokkrir utan þess,
tengdir RB á beinni línu. í notkun eru
þrjár tegundir afgreiðslutækja, ein frá
Kienzle og tvær útfærslur frá IBM.
Þessi tæki hafa í mörgu breytt vinnu-
umhverfi bankamanna. Gjaldkerar sjá
nú um skráningu ýmiss konar fyrir utan
sitt hefðbundna starf. í afgreiðsludeild-
um eru skjáir m.a. notaðir til að fletta
upp upplýsingum um reikninga við-
skiptamanna í stað þess að fletta í listum.
Hægt er að prenta út upplýsingar af
skjám, bæði til að nota í deildunum, t.d.
bókhaldi og einnig til að afhenda við-
skiptavinum, t.d. reikningsyfirlit. Þess-
ar upplýsingar eru reyndar dagsgaml-
ar, vegna þess að færslur dagsins eru
ekki enn komnar inn á uppfletti-skrárn-
ar. Þetta er eitt af þeim atriðum, sem
breytist á næstu misserum, því eitt af
öðru munu verkefnin, sem unnin eru
hjá RB verða uppfærð á rauntíma (Real
Time Update).
Þetta krefst nánari útskýringar:
í dag er vinnslugangurinn á þann veg,
að öllum færslum bankanna er safnað
saman að kvöldi í RB og verkefnin síðan
unnin um nóttina. Reyndar eru færsl-
urnar í AK-kerfinu skráðar beint á
vinnuskrár í RB jafnóðum og þær eru
framkvæmdar en hin raunverulega upp-
færsla á aðalskrám er gerð með runu-
vinnsluverkefnum næstu nótt.
Rauntímauppfærsla breytir hinsveg-
ar upplýsingum á aðalskrám um leið og
færslan er send frá bönkunum til RB.
í íslenskum
Friðbert Traustason
starfar í Reiknistofu
bankanna. Hann er
fyrrv. varaformaður
SÍB og á sæti í samn-
inganefnd og tækni-
nefnd sambandsins.
Það þýðir að ekki er þörf á neinni eftir-
skráningu eða næturvinnslu fyrir þær
færslur.
Fyrstu verkefnin sem verða líklega
uppfærð á rauntíma eru Sparisjóður og
Tékkareikningar. En áður en það verður
að veruleika, þarf að ljúka tengingu
allra útibúa, sem tengd eru þessum
verkefnum hjá RB.
Það sem ég hef lýst hér að framan,
eru einungis þær breytingar, sem verða
á beinlínukerfinu á næstu misserum,
en það er fleira, sem koma skal.
Sjálfvirkni í afgreiðslu mun aukast,
J þ.e. möguleikum viðskiptavina til að af-
| greiða sig sjálfir með hjálp ýmissa
| tækja verður fjölgað á næstu árum.
í dag höfum við sjálfsafgreiðslutæk-
in, sem einhverra hluta vegna hafa ekki
náð sömu hylli hér á landi og erlendis.
Ég held að bæta mætti kynninguna á
notkunarmöguleikum þessara tækja,
ekki einskorða hana við peningaúttektir
utan afgreiðslutíma bankanna. Við, sem
erum bæði með tékkhefti og greiðslu-
kort, höfum litla sem enga þörf fyrir
peningaseðla.
Það er hægt að nota þessi tæki til
margra annarra nytsamlegri hluta.
Komin eru á markaðinn tæki, sem
staðsett eru í afgreiðslusal bankans til
afnota fyrir viðskiptamenn. Þar getur
viðskiptamaðurinn flett upp sínum eigin
reikningum og prentað út yfirlit, ef hon-
um sýnist svo. Hann getur líka pantað
gjaldeyri, ávísanahefti o.fl. Einnig er
hægt að kynna sér öll kjör, sem bankinn
i býður bæði á inn- og útlánum, gengi
o.fl. Þessi tæki eru uppfundin til þess
I m.a. að fækka einhæfum og oft leiði-
, gjörnum störfum.