Bankablaðið - 01.12.1987, Qupperneq 18
18
Erlent samstarf
Hundrað ára afmæli
Sænska bankamanna-
sambandsins
Á þessu ári heldur sænska banka-
mannasambandið upp á aldar afmæli
sitt. Hluti hátíðarhaldanna tengdist
þingi sambandsins, en það er haldið
annað hvert ár, að þessu sinni dagana
13., 14. og 15. maí.
SÍB var boðið að senda tvo fulltrúa á
þingið. Stjórn SÍB valdi Friðbert
Traustason og Margréti Brynjólfsdótt-
ur til fararinnar. Margrét átti ekki
heimangengt, svo að undirritaður fór í
hennar stað.
Dagskrá þingsins hófst að morgni 13.
maí á Grand Hótel. Þessi fyrsti dagur
var fyrst og fremst helgaður afmælinu.
Meðal annars voru sænska bankamanna-
sambandinu færðar ýmsar veglegar
gjafir, sem komu reyndar aldrei fyrir
augu þingheims enda margar og fyrir-
ferðarmiklar, svo að flytja varð þær í
annað húsnæði strax fyrsta dag þings-
ins. SÍB gaf SBmf stóran og sérkenni-
legan fugl úr stáli og gleri, sem Jens
Guðjónsson gullsmiður smíðaði.
Fyrri hluti dagsins fór í ræðuhöld
ýmissa merkismanna. þar ber helstan
að telja Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svía. Að ræðu hans lokinni var
gert hlé á þingstörfum og gestum og
fulltrúum boðið til hádegisverðar með
sjálfan Svíakonung, Karl Gústaf, í önd-
vegi. Eftir þennan viðburðaríka hádegis-
verð hélt þinghald áfram með panel-
umræðum. Um kvöldið var síðan sam-
koma í Stockholmsmássan.
Á fimmtudagsmorgni hófst annar
dagur þinghalds með hefðbundinni dag-
skrá. Skipaður var þingforseti, ritarar
og aðrir embættismenn. Því næst fór
fram kosning fulltrúa í vinnuhópa og
nefndir.
Nokkuð fróðlegt var að fylgjast með
kosningum, en þær eru töluvert frá-
brugðnar því sem hér gerist. Þetta felst
í því, að forseti þingsins ber upp tillögur
stjórnar og biður menn að samþykkja
með „já“ eða hafna með „nei“. Úrslitin
ráðast af því í hvorum heyrist hærra.
Forystumenn Sænska bankamannasambandsins í góðum felagsskap. Fra vinstri: Karl-Erik
Svensson, framkvæmdastjóri; Inger Rudholm, 2. varaformaður; Karl Gústaf, konungur;
Rolf Blom, formaður; Birgitta Persson, fráfarandi 2. varaformaður og Wilhelm Lemchen, 1.
varaformaður.
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svia,
flutti ræðu á hátiðarfundinum.
Komi upp ágreiningur um túlkun úrslita
má krefjast endurtekningar. Endanleg
niðurstaða fæst með handaupprétting-
um, fyrst þeirra sem eru samþykkir,
þá þeirra sem eru á móti.
Nefndir og hópar settust síðan á rök-
stóla, þegar skipan þeirra lá fyrir. Þar
var tekin afstaða til tillagna og ályktana
stjórnar SBmf.
Þennan fyrsta dag gerði stjórn SBmf
grein fyrir starfi sínu og stefnu. Þar
tók mestan tíma frásögn og túlkun nýrra
kjarasamninga, sem gáfu um 3% launa-
hækkun. Þeir höfðu einmitt verið undir-
ritaðir degi fyrir þingið.
Föstudaginn 15. maí hófst síðan síð-
asti dagur þingsins með umræðum um
niðurstöður nefnda og hópa. Þennan
sama morgun var gestum SBmf boðið í
skoðunarferð um hluta borgarinnar,
fyrst í bátsferð og þar á eftir í göngu-
ferð um Gamla Stan með viðkomu í
Stockholms Medelstids Museum.
Eftir góðan hádegisverð var haldið í
þingsalinn að nýju. Þar stóð þá yfir um-
ræða um næsta þing ársins 1989. Kosn-
ar voru undirbúningsnefndir. Sjálfu
þinghaldinu lauk síðan með samantekt
á þingstörfum og úthlutun viðurkenn-
ingar til þeirra þingfulltrúa er áttu
langt og gifturíkt starf að baki fyrir
SBmf. Um kvöldið var öllum boðið til
glæsilegs hátíðarkvöldverðar í Ráðhús-
inu. Þar fer árlega fram viðhafnarsam-
koma eftir afhendingu Nóbelsverð-
launa.
Guðjón Skúlason.