Bankablaðið - 01.12.1987, Side 19
J afnréttismál
19
Anna Guðrún ívarsdóttir:
Engar róttækar breytingar,
en miðar í rétta átt
Anna G. ívarsdóttir
starfar í Búnaðar-
banka íslands. Hun
er gjaldkeri SÍB.
næsta sumar. Áætlað er að fleiri þúsund
konur frá öllum Norðurlöndum sæki
ráðstefnuna. Er þar bæði um að ræða
konur sem koma á vegum félaga, stofn-
ana og á eigin vegum. SÍB hefur ákveðið
að senda ekki fulltrúa á hana, þar sem
kostnaður yrði mjög mikill. Hins vegar
mun Norræna bankamannasambandið
líklega senda einn eða fleiri fulltrúa á
ráðstefnuna, sem síðan gefa skýrslu um
hana til aðildarfélaga sambandsins. Á-
stæða er til að hvetja allar konur sem
áhuga hafa á jafnréttismálum og hafa
til þess tækifæri, að fara á ráðstefnuna.
Komið hefur upp sú hugmynd að Nor-
ræna bankamannasambandið haldi aðra
jafnréttisráðstefnu þar sem sérstök á-
hersla yrði lögð á menntunarmál. Ekki
er enn búið að taka ákvörðun um ráð-
stefnu þessa, en trúlega yrði bönkunum
boðin aðild að ráðstefnunni. Það er ein-
kennandi fyrir stefnu Norræna banka-
mannasambandsins að það er lögð mikil
áhersla á að vinna að jafnréttismálum í
samvinnu við bankana.
Á síðasta þingi SÍB var samþykkt á-
skorun um að semja um fæðingarorlof
til handa feðrum. Það er mín skoðun að
jafnrétti náist ekki í reynd fyrr en feður
fái fæðingarorlof til jafns við konur, og
taki á sig þær skyldur og kvaðir sem
fylgja heimilishaldi. í samræmi við á-
lyktun þingsins var krafa um fæðingar-
orlof sett fram í seinustu kjarasamn-
ingum, en var alfarið hafnað. Það er
reyndar mjög ósennilegt að eitt stéttar-
félag fái kröfu sem þessa í gegn, trúlega
^erist það ekki fyrr en Alþingi sam-
þykkir lög þess efnis.
Eins og fram hefur komið hefur fátt
róttækt gerst en öllu miðar þessu í rétta
átt. Aðalatriðið er að láta aldrei deigan
síga og láta heyra í okkur alltaf þegar
tækifæri gefst.
í sambandi við kjarasamninga sem
undirritaðir voru s.l. vor var skrifað
undir bókun um jafnréttismál. Sam-
kvæmt þeirri bókun eiga SÍB og bank-
arnir að vinna sameiginlega að úrbótum
í jafnréttismálum. í bókuninni segir að
samkvæmt könnun norrænu banka-
mannasamtakanna sé um 13.7% munur
á launum milli kynja. Brýnt er að kanna
þessar niðurstöður, og hverjar séu á-
stæður hennar. Leiðir til úrbóta eru að
bæta menntun kvenna og reyna að hvetja
þær til að sækja um stjórnunarstörf
innan bankakerfisins. Ennfremur segir
að hugsanlegt sé að halda sérstök nám-
skeið fyrir konur í bankakerfinu. Þessi
bókun er merkileg að mínu áliti, þar
sem nú á að taka til athugunar launamun
milli kynja í bankakerfinu, með það að
markmiði að öllum séu greidd sömu
laun fyrir sömu vinnu.
í vor sem leið var haldið kvennanám-
skeið á vegum SÍB. Fræðslufulltrúi
norskra bankamannasambandsins, Ann-
Sofie Holmen, var fengin hingað til að
halda tveggja daga félagsmálanám-
skeið fyrir konur. Þær konur sem tóku
þátt í námskeiðinu voru tilnefndar af
starfsmannafélögum bankanna, og
þótti námskeiðið takast vel. Megin-
markmið þess var að efla sjálfstraust
kvenna til að geta tekið ákvarðanir, þora
að standa við þær og tala fyrir þeim. í
framhaldi af þessu námskeiði og með
hliðsjón af bókun um jafnréttismál,
hefur verið ákveðið að SÍB muni halda
hliðstæð námskeið fyrir konur í banka-
kerfinu. Ætlunin er að halda fyrstu nám-
skeiðin í vetur.
SÍB hefur tekið þátt í starfi Norræna
bankamannasambandsins að jafnréttis-
málum. Sl. sumar var haldin ráðstefna
á vegum Norræna bankamannasam-
bandsins. Ráðstefnan var haldin í Finn-
landi og sóttu 4 fulltrúar frá íslandi
hana. Aðallega var fjallað um mun á
félagslegum aðstæðum milli karla og
kvenna. Er það mat manna að ekki verði
öllu lengra komist í jafnréttisbarátt-
unni, án þess að breyta þjóðfélaginu,
þannig að karlar jafnt sem konur taki
ábyrgð á börnum og heimili. Einnig var
reifuð sú spurning hvort konur kærðu
sig yfirleitt um að keppa á vinnumark-
aðinum á sama hátt og karlar, því svo
virðist að þær konur sem komast áfram
þurfi að nota sömu leiðir og karlar. Mér
fannst þessi ráðstefna takast mjög vel,
bæði hvað varðar efnisumfjöllun, og
ekki síst var gaman að kynnast norræn-
um bankamönnum og heyra hvað þeir
eru að starfa við.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum
verður haldin kvennaráðstefna í Osló
Nokkrir þatttakenda í jafnréttisraðstefnu NBU i Finnlandi að störfum.