Bankablaðið - 01.12.1987, Síða 36
36
Frá starfsmannafélögunum
Styrkir úr námssjóði.
Stjórn námssjóðs annast úthlutun úr
sjóðnum. Á þessu ári hafa verið veittir
20 námsstyrkir og 10 kynnisfararstyrk-
ir verða veittir á árinu.
Skemmtinefnd.
„Opið hús“ var haldið í mars sl. og
var þá spilað bingó. Uppselt var og kom-
ust færri að en vildu. Þórsmerkurferð
var farin í júlí í samvinnu við íþrótta-
nefnd. Árshátíðin var haldin 2. október
að Hótel Sögu og fór hið besta fram. í
desember sér skemmtinefndin um jóla-
föndur og jólaball fyrir börn starfs-
manna.
íþróttanefnd.
Helgina 4.-5. apríl fór fram á Akur-
eyri hin árlega sexþraut, þar sem starfs-
menn úr Reykjavík kepptu við starfs-
menn á landsbyggðinni. Landsbyggðin
fór með sigur af hólmi, en naumlega
þó. Laugardaginn 23. maí var haldið
landsmót í golfi í boði Landsbankans á
Hvolsvelli. Mótið fór sérstaklega vel
fram í góðu veðri. Sigurvegari án for-
gjafar var Ragnar Ólafsson á 75 högg-
um. Þórsmerkurferð var farin 18. júlí.
Tóku 150 manns, starfsmenn og fjöl-
skyldur þeirra, þátt í ferðinni. Var ýmis-
legt til gamans gert, söngur, leikir,
gönguferðir og grillveisla um kvöldið.
Taflnefnd.
í janúar fór fram hin árlega hraðskák-
keppni milli Landsbankans og Land-
spítalans. Teflt var á 10 borðum og báru
Landsbankamenn sigur úr býtum. Að
venju var tekið þátt í skákkeppni stofn-
ana og hafnaði Landsbankinn þar í 9.
sæti með 15 vinninga af 28 mögulegum.
í hraðskákkeppninni varð Landsbank-
inn í 7. sæti með 31 vinning af 56 mögu-
legum. Meistaramót Landsbankans í
hraðskák var haldið í maímánuði og
varð Jóhann Örn Sigurjónsson í efsta
sæti. Um mánaðamótin september-októ-
ber hélt 4ra manna skáksveit Lands-
bankans til Lundúna og voru þar tefldar
kappskákir gegn þremur enskum bönk-
um. Sigur vannst gegn Midland Bank
og Lloyds Bank en gegn National West-
minster Bank tapaðist leikurinn. Sam-
eiginlegt hraðmót allra bankanna fór
fram 11. nóvember.
Spilanefnd.
Spilanefnd hefur staðið fyrir spila-
kvöldum og er þá spiluð félagsvist og
bridge. Nokkrar sveitir frá Landsbank-
anum tóku þátt í bridgemóti SÍB s.l.
vetur og sigraði þar ein af sveitum
bankans. Bridgesveitir Landsbankans
og Útvegsbankans hafa tvívegis keppt
innbyrðis á árinu og hafa úrslit orðið
þau að hvor sveit hefur unnið einu sinni.
Spilanefnd hefur fengið Ragnar Her-
mannsson frá Bridgeskólanum til að
kenna bridge í nóvember og verður
kennt vikulega í sex kvöld.
Eins og sjá má af framangreindu fer
fram blómlegt félagsstarf innan FSLÍ.
Starfsmannafélag Landsbankans send-
ir bestu kveðjur til allra félagsmanna
Kristín Eiríksdóttir.
Ve rsluna rbankinn:
Jólaglögg bannað
fyrir karlmenn!
Starfsmannafélag Verzlunarbanka ís-
lands var stofnað 31. október 1958 og
verður því 30 ára næsta haust. Markmið
félagsins er að efla þekkingu félags-
manna á bankamálum, auka samstarf á
milli starfsmanna innbyrðis og einnig
á milli þeirra og stjórnar bankans, jafn-
framt því að jafna deilur félagsmanna
og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.
Félagið hefur eins og önnur starfs-
mannafélög fylgst náið með kaupum
og kjörum félagsmanna sinna og öllum
samningum þar að lútandi.
Félagsstarf er með nokkuð hefð-
bundnum hætti og er haldin hressileg
árshátíð á hverju hausti. Starfsmenn
sjá jafnan sjálfir um skemmtiatriði og
skiptast starfsmenn deilda og útibúa á
um að skemmta samstarfsfólki sínu.
Félagið á einnig tvo sumarbústaði í
Þjórsárdal og er árlega farin gróður-
setningar- og fjölskylduferð austur.
Vorferðin er oftast farin í kring um
Hvítasunnuna og er þátttaka yfirleitt
mjög mikil. Að gróðursetningu lokinni
er haldin vegleg grillveisla og hefur
það aldrei komið fyrir að nokkur færi
svangur heim! Á heimleiðinni er það
fastur liður að stoppa í sundlaug og þá
yfirleitt Þjórsárlaug eða Selfosslaug,
sem reyndar hefur notið síaukinna vin-
sælda vegna rennibrautarinnar. Þessar
fjölskylduferðir skipa orðið fastan sess
í hugum starfsmanna bankans og finnst
mörgum sem sumarið komi fyrst eftir
vorferðina.
Félagið ver 10% af félagsgjöldum
sínum í „Náms- og kynnisfararsjóð" og
er markmið hans að gera félagsmönn-
um kleift að leita sér aukinnar mennt-
unar innlendis sem erlendis. Nokkrir
starfsmenn bankans hafa notið styrks
sjóðsins til utanfarar og þannig gefist
kostur á að auka þekkingu sína.
Auk þessara föstu liða hefur starfs-
mannafélagið stutt allar tillögur, sem
stuðlað hafa að auknum samskiptum á
milli starfsfólks, og má þar til dæmis
nefna árlegt „jólaglögg“, sem útibú og
deildir skiptast á að sjá um. Jólaglöggið
hefur þó þá sérstöðu að einungis kven-
fólk má sækja það og er eiginkonum
karlmanna sem starfa hjá bankanum
boðið í stað þeirra. Síðan má nefna jóla-
föndrið, en starfsfólk hefur undanfarin
ár tekið sig saman og föndrað með börn-
um sínum fyrir jólin.
Alþýðubankinn:
Árshátíð í
Skíðaskálanum
Hefðbundið starf þessarar stjórnar
hófst með aðalfundi félagsmanna í
febrúar s.l., og var mæting mjög góð. í
stjórn voru kosnir: Úlfur Guðmunds-
son, formaður; Gunnhildur Bjarnadótt-
ir, gjaldkeri; Geir Magnússon, ritari;
Jóna Helga Hauksdóttir, varamaður og
Ingibjörg Guðjónsdóttir, varamaður.
Á fundinum var samþykkt að fara
f jölskylduferð í sumarbústaðinn á Þing-
völlum til gróðursetningar, en þetta árið
var þátttaka frekar slæm.
Starfsmenn bankans á Akureyri og
makar þeirra tóku þátt í golfmóti banka-
manna og gekk þeim afburðavel, tóku
flest verðlaunin enda góðir íþróttamenn.
Árshátíð bankans var haldin í Skíða-
skálanum Hveradölum í snæviþöktu um-
hverfi og var þar kátt í höllinni fram
eftir nóttu.
Á haustmánuðum hætti störfum Úlf-
ur Guðmundsson formaður en Jóna
Helga Hauksdóttir varamaður í stjórn
tók við störfum formanns. Einnig hætti
bankastjóri Alþýðubankans Stefán M.
Gunnarsson störfum í ágúst s.l. og var
það mikill missir fyrir starfsmenn.
Starfsmannafélagið vill þakka honum
fyrir samstarfið á liðnum árum.