Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 83
LINDIN
81
er kærleiksfaðmur föðurins á himnum, sem ljýður
okkur velkomna til æðri heima. Ætti það ekki að
vera okkur hvöt til þess að lifa lífinu hér í kæi'leika,
kærleika til bræðra og systra og alls, sem lifir.
Látum nú veturinn nýbyrjaða verða okkur afl-
gjafa til sannara og heilhrigðara lífs. Látum ekki
þau tækifæri, sem hann færir okkur, fara framhjá.
Verum vakandi í starfi okkar, sönn og trú okkar
innra manni og einlæg i liugsun, orðum og gerðum,
og þá munum við „eignast sumar innra fyrir and-
ann, þótt ytra herði frost og kyngi snjó“.
Guðjón F. Davíðsson.
Frelsisbæn.
Haraldur Leósson.
Nú hátt í helgum sal
hljóma lofgjörð skal
þeim, sem lífs og lýða
er ljós um æviskeið,
styrkir þá, er stríða
i stormum heims og neyð,
fram á frelsis leið.
Vort blessa bræðralag,
blessa þennan dag.
Almáttarins andi,
ó, efl hinn veika lýð,
líkna voru landi,
og leið þú allt vort stríð
fram mót frelsis tið.
6