Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 86
84
L I N D I N
um skáldsins, sem mér sýnast eiga hér ágætlega
heima, því engir ættu fremur að vera vinir gróand-
ans, en kennarar og nemendur hvaða skóla sem er:
Heilir hildar til,
heilir hildi frá,
koma hermenn vorgróður Isalands.
Richard Beck.
Ræða Ólafs krónprins Norðmanna.
Ég vil þegar í upphafi máls míns láta í Ijós gleði
mína yfir, að fá tækifæri til þess að vera hér i dag,
á 50 ára afmælishátíð norskra ungmennafélaga og
sjá þannig augliti til auglitis mikinn fjölda norsks
æskulýðs. Það mun vita á gott, að samtímis þessum
hátíðahöldum halda nú ungmennafélögin fyrsta árs-
þing sitt eftir styrjaldarlokin. Nú ríður á að rétta
við þjóðarhaginn eftir hin ströngu stríðsár, hæði
efnalega og andlega og þá um leið siðferðilega.
Aldrei fyrr höfum vér talað eins mikið um fram-
tíðina og nú og gert áætlanir um hana, og er það vel.
En vér verðum að hyggja á góðum og gömlum arfi.
Nú á kjörorð vort að vera: „Virðum fortiðina og
hefjumst handa vegna framtíðaririnar“.
Og framtíðiin — það er æskulýðurinn, sem á ekki
aðeins að hrjóta landið og sá til efnislegra og and-
legra gæða, lieldur einnig uppskera ávexti iðju
sinnar.
Ég þori að fullyrða, að engin landssamtölc eiga
öðru eins mannvali æskulýðsins á að skipa og norsku
ungmennafélögin. Hinn mikli styrkur félaganna er
í því fólginn, að þar eru menn, hver sem er stjórn-