Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 87
LIND IN
85
málaskoðun þeirra, stétt eða starf. Og þessa þörfn-
umst vér mest í dag — að standa saman.
I þau fimmtíu ár, sem ungmennafélögin hafa
starfað, hafa þau sýnt, að þau ráða við verkefni sitt.
Ég vil fyrst og fremst benda á, hve mikinn skerf
félögin hafa lagt til þess að glæða með æskulýðnum
þjóðerniskenndina og anda lýðræðisins. Á þetta
reyndi styrj aldarárin og þessar stoðir brotnuðu ekki.
I framtiðinni mun oss þörf að vinna áfram á þess-
um grundvelli.
Aðalstarfið hefur verið unnið í sveitum landsins
og hér er verkefni, sem einkum nú kallar á krafta
norskra ungmennafélaga.
Eins og vér vitum allir, streymir fólkið til hæj-
anna og sveitirnar missa starfskrafta, sem þær mega
ekki án vera.
Þetta verður að breytast. Og vér munum stöðva
fólksstrauminn til bæjanna með þvi að húa betur að
sveitafólkinu og með því einkum, hvað æskulýðinn
snertir, að skapa honum skilyrði til heilbrigðrar
notkunar á frístundum hans.
Norsku ungmennafélögin munu afla sér alþjóðar-
viðurkenningar, ef þeim tekst með fræðslustarfsemi
sinni, almenningsbókasöfnum, söng, þjóðdönsum, í-
þróttum, góðum kvikmyndum og þróttmiklu félags-
lífi, að láta æskulýðnum í sveitunum liða vel og leið-
ast ekki.
Fyrir hönd allrar þjóðarinnar hylli ég norsk ung-
mennafélög á fimmtíuára afmælishátíð þeirra og
óska þeim gæfu og gengis í hinu mikilvæga starfi,
er þau hafa sett sér að leysa af hendi fyrir land vort
og þjóð.