Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 49
L I N D I N
43
aðskilja þetta tvennt, kennari og kennimaður; enda var sú
reyndin í starfi hans lengst af, að hann var þetta hvort-
tveggja í senn, kennari á heimili og í skóla og kennimaður
á stétt og í stóli, og að kunnugra sögn sameinaði hann þetta
með mestu sæmd og á hinn fegursta hátt.
Er mörgum Amfirðingi og öðrum, er gistu heimili hans
að Hrafnseyri, glögg í huga minningin um hinn virðulega
og háttprúða hirði og leiðtoga, sem séra Böðvar jafnan var,
því að hann var ekki aðeins kennimaður í kirkju og utan,
en hann var hinn glaði og veituli gestgjafi, hinn nærgætni
og reglufasti húsfaðir og hjálpfúsi vinur og ráðgjafi fólks-
ins, safnaða sinna og annarra. Þá mynd ætla ég að margur
geymi um hann vestur þar. Sjálfur þekkti ég ekki séra
Böðvar sem ræðumann í stóli og veit því ekki, hversu snjall
prédikari hann var. En hitt veit ég, að einlægni hans í öll-
um störfum og áhugi hans fyrir heill og velferð sóknar-
barna sinna og samferðamanna í lífinu, jafnt andlegri sem
veraldlegri, var slíkur, samfara þeim gáfum og þeirri skap-
gerð, sem honum var gefin, að nægt hefði til að gera hann að
þjóðnýtum merkisklerki, og þykist ég þess fullviss að kirkju-
ræður hans hafi verið sérlega vandaðar og vel byggðar og
hinar uppbyggilegustu, svo fádæma samvizkusamur, ein-
lægur í trú sinni og öllum störfum og strangur við sjálfan
sig, sem hann var. Mun þar eflaust hafa gætt hvorttveggja,
erfða og uppeldis á hinu mannmarga heimili, þar sem jafn-
vel börn höfðu sín ákveðnu störf að vinna og fundu að þeim
var treyst og falin nokkur ábyrgð. Ætla ég, að það hafi
ekki verið sízti þátturinn í kennimanns og kennarastarfi
séra Böðvars, áhrif þau, eða skapgerðarmótun, sem æsku-
fólk varð fyrir á heimili hans eða af nánum kynnum við
hann. Og áreiðanlega hefur þeim, sem einhverra hluta vegna