Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 53
LINDIN
47
ins og oddviti þess um fjölda ára. Var það ekki áreynslu-
né vandalaust á þeim árum, sem erfiðara var um lífsaf-
komu almennings en nú og hagur flestra því næsta þröngur.
V.
Eins og gefur að skilja, fylgir störfum þeim, sem að fram-
ar eru talin, mikill gestagangur, á venjulegu sveitaheim-
ili. Enda var það svo, að á Hrafnseyri var jafnan opið hús
gestum og gangadi og öllum tekið með sömu einlægni og
rausn.
Þrátt fyrir öll þessi mörgu og tímafreku störf og mikinn
gestagang, vannst séra Böðvari tími til talsverðra ritstarfa.
Er að finna ritgerðir eftir hann í allmörgum tímaritum
vorra frá fyrra helmingi 20. aldarinnar. Auk þess ritaði
hann kennslubók í kristnum fræðum, sem út kom 1932. Er
hún allmerkileg og skemmtilega rituð og býsna mikill fróð-
leikur þar samankominn. Sýnir hvorttveggja, samning bók-
arinnar og útgáfa, sem eflaust hefur verið alldýr, áhuga
hans fyrir málefninu, enda var hann alla tíð einlægur
áhugamaður fyrir viðgangi sannrar kristni og trúarefling-
ar í landinu. Enda sjálfur heill og falslaus í öllu sínu kenni-
mannsstarfi. Og séra Böðvar var klerkur víðar en í kirkj-
unni, eins og fyrr er sagt. Hvar sem hann vann og hvað sem
hann vann, vann hann af gleði og áhuga og leit á starfið
sem þjónustu.
Af eigin reynd get ég borið um, hve félagslyndur og vinnu-
fús hann var. Störfuðum við saman um áraskeið í Presta-
félagi Vestfjarða og einnig í stjóm þess og að útgáfu „Lind-
arinnar", tímarits félagsins. Var gott með honum að vinna,
svo starfsfús og fær sem hann var á sviði ritstarfa og fé-
lagsmála, því að séra Böðvar hafði ótvíræða rithöfunda-