Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 68
62
L I N D I N
SÉRA PÁLL SIGURÐSSON
Fæddur 29. ágúst 1884. — Dáinn 15. júlí 1949.
í hugum okkar Bolvíkinga er aðeins um einn séra Pál
að ræða, og er við hugsum til hans koma margar myndir
fram í hugann, — myndir sem gott er að eiga og gera líf
okkar, er búum við þetta afskekkta ögur á nyrstu slóðum,
auðugra og inntaksríkara á ýmsa lund. Svo lengi var hann
með oss á veginum, svo oft stóð hann á hinum margvís-
legu vegamótum lífs okkar og leitaðist við að benda okk-
ur til réttrar áttar, — ekki í krafti eigin vizku, heldur í
nafni hans, er sagði: Eg er vegurinn og sannleikurinn og
lífið. Já það er víst, að flestir þeir, er á fyrra helmingi 20.
aldarinnar ólust upp, lifðu og störfuðu í Bolungavík, — það
er víst, að flestir þeir eiga margar helgar minningar ná-
tengdar séra Páli — minningar um fagnaðarríkar og bjart-
ar hátíðarstundir í heimahúsum eða kirkjunni á Hóli, —
og margir minnast þess eigi síður.er hann kom til þeirra
í sorg þeirra með huggun og uppörvimarorð og benti þeim
á Drottinn Jesúm Krist, hversu hann hefði brotið brodd
dauðans og gert sigur hans að engu.
Séra Páll var að vísu orðinn fullorðinn maður, er hann
kom fyrst til Bolungavíkur og stóð rótum á öðru lands-
homi, en í rauninni voru þó fáir betri Bolvíkingar en hann.