Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 73
L I N D I N
67
að afstað hans muni yfirleitt hafa mótast af einlægri sann-
færingu hans sjálfs, — að hann fylgdi því er hann taldi
sannast og réttast, án þess að hirða verulega um það, hvort
það bakaði honum andúðar eða alúðar náungans. Hann hafði
að ýmsu leyti á sér höfðingjasnið að fyrri tíðar hætti, og
sumir töldu hann stoltan og steigurlátan, en það er víst,
að í barmi hans sló hlýtt og tilfinningaríkt hjarta — hjarta,
sem gat brunnið, — og gagnvart Guði sínum var enginn
auðmjúkari en hann. Það er örugglega sannmæli, sem um
séra Pál var sagt við andlát hans, að þar sem hann var,
fór „margvís maður með mikið pund“.
Vér hugsum til hans með virðingu og þökk og blessum
minningu hans.
Þorbergur Krisijánsson.
BYGGING PRESTSSETRA
Gagngerð viðgerð hefir farið fram á prestssetrinu í Bol-
ungarvík á s.I. ári.
Að Holti í önundarfirði er nýreist prestsseturshús úr
steini, vandað mjög. Flutti prófastsfjölskyldan í það í
nóvember s.l. Þar var fyrir gamalt timburhús mjög úr sér
gengið. Var þar bætt úr brýnni þörf.
Nú á þessu ári er í ráði að reisa prestseturshús á Stað í
Súgandafirði. Þar er gamalt timburhús, sem svo lélegt er
orðið til íbúðar að prestur staðarins hefir búið inn á Suður-
eyri á vetrum, en haft það sem sumarbústað.
Á Patreksfirði er í ráði að byggja prestseturshús nú í ár.
Þar er einnig gamalt timburhús sem prestsetur.