Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 112
106
L I N D I N
var hann settur inn í embætti í ögurkirkju af prófasti, séra
Sigurði Kristjánssyni. Hann dvelur nú við nám við Yalehá-
skólann í Bandaríkjunum á námsstyrk þaðan. Fékk hann í
því skyni eins árs leyfi frá störfum.
Þá var séra Baldur Vilhelmsson settur s.l. vor til þess að
þjóna Vatnsfjarðarprestakalli, sem prestlaust var um eins
árs skeið við brottför séra Þorsteins Jóhannessonar, pró-
fasts, sem flutti búferlum til Reykjavíkur.
Situr séra Baldur í Reykjanesi nú og gegnir jafnframt
embætti sínu, kennslustörfum við skólann þar.
Sem mörgum mun vera kunnugt var reist kapella í Hnífs-
dal við bamaskólann þar. Var hún vígð af biskupi, herra
Ásmundi Guðmundssyni, föstudaginn langa 8. apríl 1955.
Mun hún vera önnur kapellan á landi hér, sem byggð er í
sambandi við skólahús, er hin á Drangsnesi við Steingríms-
fjörð. Virðist þetta vera heppilegt fyrirkomulag í smá kaup-
túnum og bæjum, þar sem söfnuðurinn er of fámennur til
að ráðast í dýrar kirkjubyggingar, en lítil eða engin trufl-
un á skólahaldi vegna kirkjulegrar starfsemi, þar sem hún
að mestu fer fram á helgum dögum.
Við vigslu kapellunnar, sem jafnframt var vígsluhátíð
skólans, var mikið f jölmenni samankomið, þar á meðal allir
prestar prófastsdæmisins, menntamálaráðherra, Bjami Bene-
diktsson, þingmaður kjördæmisins, Sigurður Bjamason frá
Vigur.
KTRK JU GRIPIR
gefnir Hnifsdalskapellu og gefendur.
ísafjarðarkirkja: Kaleikur og patína, úr silfri.
Sóknarpresturinn, séra Sigurður Kristjánsson: Biblía í
skinnbandi.