Prentarinn


Prentarinn - 01.10.1912, Blaðsíða 1

Prentarinn - 01.10.1912, Blaðsíða 1
PRENTARINN 0 lIIL ÁR) [( OKT. 1912. ) — C “■BL-) SAMLAGIÐ. Það nnin vera tíðast, ef ekki regla, að lvfseðlar þeir, sem læknarnir skrifa, liljóða á nafn samlagsmanns, livort sem hann á sjálf- ur að nota lylið eða ekki. í fljótu bragði virðist máske sumum, að svo eigi þetta að vera. En eg verð að vera á annari skoðun, þvi mér virðist þetta geta bakað Samlaginu óþörf útgjöld, með því að á þennan hátt geta menn látið skrifa sig fyrir h'fi, sem ganga á til heimilismanns, sem engan rélt á til þess, t. d. 15 ára barna, vinnu- hjúa eða annara. Með þessu er þó ekki sagt, að þetta liafi átt sér stað, enda mjög erfitt að vita um það; og væntanlega grannskoða endurskoðnnarmenn svo lyfseðlana, að fyrir þessu sé nokkur trygging. Menn kunna að segja, að læknarnir muni ekki fáanlegir til að ávisa iyfi til sjúk- linga, gegn borgun úr Samlagssjóði, nema þeir eigi rélt til þeirra. Þvi held eg líka fram. En í annríki gæli þeim þó skotist yfir þetta, eC þeim væri rangt skýrt frá. Mín skoðun er, að allir þeir, sem öðlast vilja einhver réttindi í Samlaginu, hljóti einnig að hafa einhverjar skyldur gagnvarl þvi. En eins og nú er, munu þeir ekki all- íáir, sem réttindi hafa í Samlaginu en engar skyldur; og lítil deili vita félagsmenn, og líklega ekki Samlagsstjórnin heldur, á sum- um þeim, sem samkvæmt reglunum geta fengið lyf og læknishjálp. Við að athuga þetta, hefir mér komið til hugar, að gera þyríti eftirfarandi breytingar á reglum Samlagsins: Samlaginu skal skift r 3 flokka: í fvrsta flokki eru allir meðlimir Prent- arafélagsins. Réttindi söm og nú eru fyrir þá og börn þeirra. Vikugjald: kvæntir menn 30 a., ókvæntir menn 40 a. í öðrum flokki eru konur Samlagsmanna og foreldrar, sem samkvæmt reglunum eiga rétlindi í Samlaginu. Réttindi söm og áður. Vikugjald 10 aurar. 1 þriðja flokki eru lærlingar þeir, er þess æskja. Réttindi: Lvf og læknishjálp, ef sam- lagstækir eru samkvæmt læknisskoðun. Viku- gjald 20 aurar. Allir þeir, sem í einhverjum þessara flokka eru, skulu lögskráðir meðlimir Sam- lagsins. Skrá yfir meðlimi Samlagsins skal send læknunum svo oft sem þurfa þykir. Lyfseðlar skulu hljóða á nafn þess, sem lyíið á að nota. Þessar tillögur minar og athuganir vona eg að menn kryfji til mergjar og bæti og breyti til hins betra. Eg mun við umræður um þetta mál á félagsfundi gera grein fyrir frekari ástæðum fyrir þessum brej’tingum. Vænt þætti mér um, ef einhver vildi liér i blaðinu segja skoðun sínu þessu við- víkjandi. Agúst Jósefsson. PRÓFARKALESTUR. 1. Algengar reglur. í lelursetningu er venjulega nokkuð af misfellum og villum, af vangá setjarans eða vegna þess, að liandritið er illa úr garði

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.