Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Page 12

Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Page 12
108 ÚTVARPSTIÐINDI Nú varð umsjónarmannium litið á mig — eflaust hefir honum fundist einkennilegt hve lengi ég horfði á þetta andlit í speglinum, sem tómleiki sálarinnar skein úr og sljóleiki þess, sem engu hefir framar að glata í lífinu. En umsjónarmaðurinn skildi ekki neitt — vissi ekki neitt. Hann horfði algjörlega blygðunarlausum augum á mig, Iíkt og sálarlaus maður. En það skildi hann vita sá góði maður, að það var fyrir neðan virðingu mína að ympra á endurgreiðslu af einum fimm krónum, svo smásálarlegur og Iítilfjör- legur gat ég aldrei orðið. Ég reyndi að brosa um leið og ég staulaðist fram. En umsjónarmaður- inn hneigði sig virðulega og sagði: — Þakka yður fyrir, herra listmál- ari! — Og ég hugsaði: Ef til vill var um- sjónarmaðurinn eftir allt ekki algjör- legalega sálarlaus. Hann hélt auðsjá- anlega að ég væri maður sem munaði ekki minnstu vitund um að gefa einar skítnar fimm krónur fyrir að bursta skóna sína — og það gerðu sko engir smákarlar! Það var þó alltaf nokk- uð. — I— í leiðslu fékk ég ungu stúlkunni í fatageymslunni númerið. Hún fékk mér rennblautan frakkann minn og hattinn. — Það var fjandi kaldranalegt að þurfa að fara aftur í frakkann svona blautann.------- Svo féllu hringekjudyr hótelsins á hæla mér.-------Ég var aftur kominn út í ofviðrið og rigninguna. Ég bretti kragann upp í háls. Mér var að verða hrollkolt. Svo slafsaði ég áfram í götu- aurnum. — Götuljósin spegluðu sig í fagurgljáandi skónum mínum, meðan það var. . . . Frh. á bjs. 109. RIKISUTVARPIÐ Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarvMrk er að ná til allra þegna landsins með hvers- konar fræðslu og skemmtun, sem því er unnt að veita. / . AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS annast um afgreiðslu, fjárhald, utborganir, samningagerðir o. s. frv. — Útvarpsstjóri er venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Sími skrif- stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4990. INNHEIMTU AFNOTAOJALDA annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998. ÚTVARPSRÁÐIÐ (Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjóm hinnar menningarlegu starfsemi og velur útvarps- efni. Skrifstofan er opin til viðtals og af- greiðslu frá kl. 2—4 síðd. Sími 4991. FRÉTTASTOFAN annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlöndum. — Fréttaritarar eru í hverju hér- aði og kaupstað landsins. Sími fréttastofu 4994. Sími fréttastjóra 4845. AUGLÝSINGAR Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna með skjótum og áhrifamikl- um hætti. Þeir, sem reynt hafa, telja út- varpsauglýsingar áhrifamestar allra auglýs- inga. Auglýsingasími 1095. VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS hefur daglega umsjón með útvarpsstöðiimi, magnarasal og viðgerðastofu. Sími verk- fræðings 4992. VIÐGERÐARSTOFAN annast um hverskonar viðgerðir og brayt- ingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og fræðslu um not og viðgerðir viðtækja. Sími viðgerðarstofunnar 4995. Ríkisútvarpitf. TAKMARKIÐ ER: Útvarpið inn á hvert hcimilil Allir lands- menn þurfa að eiga kost á því, að hlusta á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.