Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Page 17

Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Page 17
ÚTVARPSTIÐINDI na Tvœr Vesfur-íslenzkar listakonur ÚtvarpstíSindi birta hér me'S mynd- ir af tveimur vestur-íslenzkum lista- konum, sem viS höfum kynnst nokkuS í vetur í þættinum „Kveðja vestan um haf“, Snjólaugu Sigurðsson og Agnesi Sigurðsson, en þær eru þannig skyld- ar að feður þeirra eru bræður og mæð- ur þeirra systur. Snjólaug Sigurósson. Snjólaug Sigurðsson ungfrú í Winni- peg, hefur leikið á píanó í þættinum Kveðjur vestan um haf. Hún hefur leikið á pfanó frá barnsaldri, hlaut ágæta tónlistamenntun í Kanada og í Konunglega tónlistaskólanum í London. Hefur oft leikið opinberlega í Kanada, en er nú kennari í tónlistafræði og pí- anóleik í Winnipeg. Agnes Sigurósson. Agnes Sigurðsson ungfrú, einnig frá Winnipeg. Fædd í Árborg, Manitoba, í Nýja íslandi. Sonardóttir Sig. Sigur- björnssonar frá Núpi í Skagafirði. Byrjaði að Ieika á píanó sex ára. Hlaut ágætt nám í Winnipeg og London. Hélt fyrstu opinberu tónleika sína í „Kirkju fyrsta (íslenzka) Lútherska safnaðar- inis“ í Winnipeg, síðan komið víða fram við góðar móttökur. Kennari í í píanóleik að atvinnu. VISSI UM ENDALOK ÞEIRRA. Þegar séra Sæmundur Hólm var prest- ur að Helgafelli, hafði hann eitt sinn að ræðuteksta nauðsyn alvarlegrar iðrunar og yfirbótar. Þegar nokkuð var liðið á ræðu prests komu inn í kirkjuna dansk- ir og íslenzkir verzlunarmenn frá Stykk- ishólmi. í þeim svifum brýnir prestur röddina og segir: — Það segi ég ykkur satt mínir elskanlegir, að ef þér ekki gerið iðrun og yfirbót farið þér til hel- vítis eins og kaupmennirnir og þeir dönsku.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.