Útvarpstíðindi - 17.05.1948, Blaðsíða 5
ÖTVARPSTÍÐINDI
197
Marconi- félagið aðstoðar við endur-
bætur útvarpsstöðvarinnar
Utvarpsstjóri leitar tilboða um gerð grammófónplatr a úr varanlegu efni
ÚTVARPSSTJÓRl, Jónas Þor-
bergsson, kom um síðustu mánaða-
mót heim úr utanför, og voru megin
erindi hans tvö. Annað, að leita að-
stoðar Marconi-félagsins í London
varðandi athugun á útvarpsstöðinni
og nauðsynlegrar viðgerðar á henni,
og hitt, að leita samninga um gerð
varanlegra grammófónplatna fyrir
Ríkisútvarpið og Þjóðminjasafnið.
Endurnýjun sendistöðvarinnar og 20
kiv. varastöð nauðsynleg.
Útvarpstíðindi sneru sér til Jónas-
ar Þorbergssonar, útvarpsstjóra,
skömmu eftir að hann kom úr utan-
förinni, og spurðust fyrir um árang-
urinn af för hans, og sagðist honum
meðal annars svo frá, að viðræður
sínar við Marconi-félagið í London
hefðu leitt til þess, að hingað væri
kominn verkfræðingur frá félaginu,
Corbertt að nafni, og hefur hann nú
um skeið unnið að athugun útvarps-
stöðvarinnar. — Að rannsókn sinni
lokinni mun verkfræðingurinn gefa
Ríkisútvarpinu skýrslu um ástand
stöðvarinnar, og félagi sínu tillögur.
„Mér er kunnugt um“, sagði út-
varpsstjóri, „að verkfræðingurinn
lítur svo á, að ótti forráðamanna út-
varpsins um hugsanlega stöðvun
vegna bilunar, hafi ekki verið á-
stæðulaus. Hann lítur svo á, að nauð-
syn beri til að endurnýja að mjög
miklu leyti elzta hluta sendistöðvar-
m
Jónas Þorbergsson.
innar, og setja upp varastöð, sem
myndi verða með allt að 20 kw. sendi-
orku. Ennfremur álítur verkfræðing-
urinn, að þurfi að endurnýja á var-
anlegan hátt allt kælikerfi stöðvar-
innar.
Þá hefur verkfræðingurinn unnið
að og leiðbeint um bráðabirgðavið-
gerð, með því, að gera má ráð fyrir,
að alllangur tími líði, þar til unnt
verður að koma upp varastöðinni".
U'pgtaka á varanlegar plötur.
Hitt aðalerindi útvarpsstjóra var,
eins og áður segir, að leitast við að
ná hagkvæmum samningum, sérstak-
lega í Englandi, um gerð varanlegra