Útvarpstíðindi - 11.10.1948, Blaðsíða 6
366
ÚTVARPSTÍÐINDI
hlustað á hina ýmsu dagskrárliði.
Mynd sú, sem fæst á þennan hátt,
er samt sem áður ófullkomin, að
nokkru leyti vegna misræmis í vali
hinna spurðu, og einnig vegna þess
að óhentugt er að rannsaka, hve
hlustun er almenn á útvarpssending-
um eins dags.
Á sumum stöðum hefur verið hægt
að nokkru leyti að ákveða hlust-
endafjölda hjá rafveitunum, þar sem
vart verður við óeðlilega aukningu
álagsins. Samt er ekki hægt á þenn-
an hátt að fá að nokkru leyti sanna
hugmynd af hlustendafjöldanum.
Við útreikning og smíði viðtækja
í rannsóknarstofum h.f. Eltra, hefur
fundist leið til þess að ákveða og
rita niður, með rafmagnstæki, hlust-
endafjölda á hvaða tíma sem er. Að-
ferð þessi grundvallast á þeirri stað-
reynd, að viðtæki, sem tengt er við
riðstraumsnet, myndar straum þann,
er það notar vegna hins innbyggða
afriðils. Með viðeigandi síum og áf-
riðlum hinna harmonisku bylgja,
sem orsakar þessa myndun straums-
ins, er hægt að fá fram ákveðna
spennu og þarmeð ákveðinn útslátt
á vísi, og er stærð ústláttarins í
beinu hlutfalli við hlustendafjölda
á hverju augnabliki.
Með því að nota sjálfritandi mæli-
tæki, er hægt að breyta árangri
mælinganna sjálfkrafa og án nokk-
urs erfiðis í línurit, sem sýnir
hlustendafjöldann á hverju augna-
bliki og þarmeð við hvern dagskrár-
lið.
Dæmi um slík línurit, sem sýna
hlutfallslegan fjölda hlustenda í
liluta af Sorgenfri með húsaröðum
á tímabilinu 4.—8. ágúst s.l., eru
sýnd á ljósprenti. Á þessum línu-
ritum er dagskrá danska útvarpsins
rituð á tímaásinn.
Útskýring á einstökum atriðum á
tæki þessu, yrði of löng hér, en
helztu einkenni þess koma fram í
eftirfarandi yfirliti:
1. Það er eingöngu hægt að nota
það í sambandi við riðstraum.
2. Það ritar eingöngu niður hlust-
endafjölda á því svæði, sem tækið
er tengt við. Á þennan hátt er hægt
með vali spennistöðvarinnar að fá
línurit fyrir hinar ýmsu stéttir þjóð-
félagsins.
3. Tækið ritar niður sérhvert við-
tæki, sem er í notkun innan viss
svæðis, og er því ekki hægt að sjá,
hvaða stöðvar tækin eru stillt inn
á. Samt sem áður er hægt að áætla
hluta hverrar útvarpsstöðvar í hlust-
endafjöldanum af risi og falli lín-
anna í sambandi við breytingu dag-
skrárinnar. Af línuritum þeim, sem
hingað til hafa verið tekin í Sorgen-
fri fyrir norðan Kaupmannahöfn,
er sýnilegt, að danska dagskráin
ræður mestu um rás línunnar.
Sænska dagskráin, sem heyrist vel
á þessum slóðum, virðist aðeins hafa
nokkur áhrif á vissum tíma síðari
hluta dags, þegar danska útvarpið
flytur tungumálakennslu meðan hið
sænska flytur vinsæla grammófón-
tónleika.
4. Tækið sýnir beint og strax það
sem spurt er um.
5. Tækið hefur ekki áhrif á svar
það, sem óskað er eftir. Slíkt getur
aftur á móti komið fyrir við spurn-
ingar eða ef almenningur er ávarp-
aður beint á annan hátt. Venjulega
gefa slikar spurningar lilustendum
aðeins einn punkt í línuritinu, en